Æskan

Årgang

Æskan - 01.10.1992, Side 54

Æskan - 01.10.1992, Side 54
Svar til Snúllu: Þetta alvarlega mál sem þú lýsir þarf að leysa í sam- vinnu við fagfólk. Þegar um er að ræða ofbeldi á börnum ber að tilkynna það Barna- verndaryfirvöldum en starfs- menn þeirra eru starfsfólk á félagsmálastofnunum. Starfi fagfólk íþínum skóla, hjúkr- unarfræðingur, sálfræðing- ur eða félagsráðgjafi er hægt að hafa samband við það fólk. Einnig getur fjölskyld- an leitað til Kvennaathvarfs- ins í Reykjavík, sími: 91- 611205, og öll börn geta leit- að í Rauðakrosshúsið, sími: 91-622266. Það er mikilvægt að taka á slíkum málum fljótt því að yfirleitt er það ekki á færi leikmanns að rjúfa svona erfitt samspil. Þú og fjölskylda þín getið áreiðan- lega komið að gagni við að styðja þessa fjölskyldu í góðri samvinnu við sérfræð- inga. RUGL EÐA HVAÐ? Kæra Nanna Kolbrún! Vandamál mitt er þetta: Ég hlýt að vera með einhverja ævintýra- dellu eða -veiki. Ég ímynda mér alla skapaða hluti, talandi fugla, Ijón, hesta og líka hesta með mannshöfuð. Ég er bogmaður. Eft- ir að ég sá Sögur frá Narníu fyrst hef ég verið ein ævintýraklessa. Ég hlýt að vera orðin snarrugluð. Ég ímynda mér til dæmis að ein- hvers staðar í enda alheims sé hægt að gera allt sem manni sýn- ist, þar séu víkingar, töframenn, drekar, nornir, vættir og alls kon- ar furðurdýr. Gerðu það, elsku Nanna Kol- brún, hjálpaðu mér. Ég er að drep- ast, er rugluð, vitlaus, geðveik eða bara allt. Hvað lestu úr skriftinni? Hvað er ég gömul? Lísa í Undralandi. Svar: Ég held að þú þurfir ekki að óttast að þú sért rugluð en þú þarft hjálþ til þess að vinna úr öllum þeim áhrifum sem þú verður fyrir. Þegar ímyndunar- aflið fer á svona mikið flug bend- ir það til vissrar einangrunar og jafnvel einmanaleika. Reyndu að vera dugleg að ræða við foreldra þína um það sem þú lest eða horfir á í sjónvarpinu. Einnig gæti ég trúað að það væri gott að hvíla sig sem mest á sjón- varpsglápi á meðan þú ert að ná tökum á þessu. Verðu meiri tíma í féiagsskap annarra og reyndu að finna fótfestu í raun- veruleikanum við leik og störf. Ég giska á aldurinn 10-12 ára. Skriftin er nokkuð slitrótt og óæfð enn þá, gæti einnig borið nokkurn vott um öryggisleysi. KJÖT Á BEININ Kæra Nanna Kolbrún! Ég er hreint og beint að verða vitlaus. Ég hef oft reynt að skrifa þér en þegar ég hef verið næstum búin með bréfin hef ég hætt við og nú á ég að a.m.k. sjö bréf til þín inni í skáp. (Sennilega hef ég alltaf hætt við vegna þess að þegar vandamálin voru komin á blað voru þau leyst) Jæja, nú skal þetta takast. Skrif-aðferðin dugði ekki nú (ég er með uppkastið fyrir framan mig). Og hér koma svo vandamál mín: 1. Hvað á ég að gera ef ég get ekki þyngst? 2. Hvað er hægt að gera við ó- reglulegum blæðingum? Ég get ekki þyngst. Ekki er því um að kenna að ég borði ekki. Ég borða eins og hross en allt kemur fyrir ekki. Ég er 165 sm og 48-50 kg. Ég er smábeinótt en samt... Mamma segir að ég sé frekar vel vaxin en það er ekki möguleiki. Mér finnst ég vera með of stór brjóst (90sm!!)((oj)), of mjótt mitti, (60 sm) og of beinaberar mjaðmir (87 sm) (oj,oj, barasta). Það er ekkert sniðugt að vera svona. Ég vil fá kjöt. Hún mamma vill ekki trúa að ég vilji ekki vera lít- il og nett. Mig langar að vera stór og sterkleg, ekki svo lítil að ég sjá- ist varla í smásjá og horuð í þokka- bót. Hvað geri ég nú? Þá er það þetta með blæðing- arnar. Ég er 16 ára. Hef verið með blæðingar í rúm 2 ár. í Heimilis- lækninum las ég að blæðingar yrðu reglulegar þegar stelpur yrðu yfir 45 kg. Ekki ég, svo mikið er víst. Er eitthvað hægt að gera til að fá reglulegar blæðingar? (Það munaroft5-6 og upp í 10-12 dög- um). Grís-88. Svar: / bréfi þínu lýsir þú vel hvern- ig það getur oft hjálpað í vanda að skrifa hugsanir sínar hjá sér. Þannig kemst oft skipulag á þá ringulreið sem getur hrannast upp í huganum þegar allt bland- ast saman, tilfinningar, spurn- ingar og óafgreidd mál. Svörin hefur maður oftast sjálfur þeg- ar tækifæri hefur gefist til að ræða við einhvern eða skrifa þankana niður á blað. Bréf þitt er nokkuð langt og því ekki hægt að birta það í heild sinni en allar spurningarnar sem þú varpar fram, veit ég að marg- ir jafnaldrar þínir þekkja og vildu fá svör við. Spurningum 1 og 2 er svarað eins og þú biður um. Þær eru nátengdar að því leyti að það þarf ekkert að vera óeðlilegt við holdafarið eða tíma- bilið á milli blæðinganna hjá þér. Þú virðist vera grönn en ekki horuð. Frávikin á blæðingunum hjá þér eru einnig innan eðli- legra marka og því ekki um ó- reglulegar blæðingar að ræða. Þú er greinilega mjög sam- viskusöm stúlka og eitt einkenni hjá slíku fólki eru áhyggjur, líka yfir hlutum sem eru í lagi. Bréf þitt bendir einnig til viss örygg- isleysis og mikillar sjálfsgagn- rýni. Það er engin manneskja fullkomin og maður á ekki að gera þær kröfur til sjálfs sín. Þú verður að gefa sjálfri þér leyfi til að mega vera skotin og hrifin af stórum og litlum, feitum og mjó- um, gömlum og ungum, munk- um og glaumgosum ef þér líður þannig. Það er langur vegur á milli hugsana og gjörða. Reyndu að vera ekki svona áhyggjufull yfir því hvernig þú ert og haltu á- fram að ræða við þá sem þér finnst gott að ræða við og fá þannig speglun á hugsanir þín- ar og vangaveltur. Á MILLI PABBA OG MÖMMU Kæra Nanna Kolbrún! Ég er hér með vandamál. Það fyrsta er að ég stend alltaf með pabba mínum þegar mamma og pabbi eru að rífast. Þá vorkenni ég alltaf pabba. Mér finnst alltaf eins og mamma vilji bara vorkenna sjálfri sér. Stundum þegar hún fer eitthvað finnst mér það þægilegt. Samt treysti ég henni fyrir flestu. Svo vill mamma flytja en ekki pabbi. Ef hún flytur, þá ætla ég að vera hjá pabba eins og mér sé al- veg sama þótt mamma fari. Er eitthvað að mér? Svo er það annað. Heldur þú að stelpur geti farið að sofa hjá um leið og þær byrja að hafa blæðing- ar? Heldurðu að maður sé nógu gamall þegar maður er 15 ára? Hvort byrja strákar eða stelpur fyrr að sofa hjá? Hvað lestu úr skrift- inni? Sigga. Svar: Það er ekkert óeðlilegt við til- finningar þínar til foreldra þinna. Börn eru tengd foreldrum sín- um á mismunandi hátt. Þú treystir mömmu þinni fyrir flestu en þegar foreldrar þínir rífast stendur þú oftast með pabba þínum. Þannig eru þau bæði ná- lægt þér en hvort á sinn hátt. Af bréfi þínu virðist mér sem þú þlandir þér of mikið í málefni foreldra þinna. Reyndu frekar að draga þig í hlé þegar þau eru ó- sammála. Þú berð ekki ábyrgð á vandamálum þeirra og þér ber ekki skylda til að taka afstöðu með eða á móti. Foreldrar þínir S 8 Æ S K A N

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.