Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1993, Blaðsíða 7

Æskan - 01.07.1993, Blaðsíða 7
einhver ab kalla á þig. Sko, nú heyrist það greinilega." Eg stóð upp og þóttist hlusta. „Einhver kallar á þig þarna úti." Ég benti út í garðinn. ísabella gekk út að gluggan- um og skimaði út. „Ég sé engan. Þú ert farin að heyra ofheyrnir." „já, líklega heyri ég bara of- heyrnir," sagði ég og hélt á- fram að leika mér. En allt í einu spratt ég á fætur. „Þú heyrðir þó þetta," sagði ég og gerði mér upp ótta. ísabella hristi höfuðið. „Komdu. Það er einhver í hættu, einhver sem kallar stöðugt á þig." Ég tók í hönd hennar og teymdi hana út. „En ég heyri ekki neitt," tautaði hún hikandi. „Usss..." Ég þóttist hlusta. „Sko, það kemur úr garðinum. Kannski eru blómin að kalla á þig." Isabella horfði vonskulega á mig. „Láttu ekki eins og fífl." Eg gekk varlega áfram að blómabeðinu þar sem bangs- inn lá falinn milli blóma. „Það kemur héban. Ég heyri svo greinilega að einhver segir hálfgrátandi: „ISABELLA, ÍSABELLA, HJÁLP- AÐU MÉR."" Hún horfði vantrúuð á mig, en fór svo að blómabeðinu og leit ofan í það. Ég sá hvernig hún kipptist við þegar hún kom auga á bangsann sinn. „Jeminn, bangsinn minn liggur hér úti." „Nei, sko. En fallegur bangsi. Hann talar dálítið und- arlega. Er hann ekki íslensk- ur?" spurði ég. ísabella horfði á mig, fyrst undrandi, en svo móðguð. „Ég hefði aldrei trúað því að þú væri svona mikið fífl," sagði hún. „Þú ert bara heimsk fjallageit og mig langar ekkert til að leika við þig. Hver held- urðu að trúi því að dauðir tuskubangsar tali?" „Ertu að kalla mig lygara?" spurbi ég móðguð. ísabella starði á mig og ég starði á hana á móti. En þá fór hún allt í einu ab skellihlæja og sagöi: „Veistu það að konan í næsta húsi á kartöflugarð með venjulegum kartöflugrösum en á haustin þegar hún tekur upp úr garðinum koma ekki kart- öflur heldur..." „Heldur hvað?" spurði ég spennt. „Það koma epli og appelsín- ur, gúrkur og tómatar og stundum stórir demantar." Við hlógum saman við ísa- bella. Já, það er gaman að eiga vinkonu en alveg ómögu- legt að leyfa henni alltaf að rába ferðinni. Ég bið að heilsa krökkunum sem lesa Æskuna! Þín Rósin Jónas. Æ S K A N 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.