Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1993, Blaðsíða 37

Æskan - 01.07.1993, Blaðsíða 37
ÆSKU PÚSTUR - pósthólf 523, 121 Reykjavík. ÍSLENSKUN NAFNA-Á LÉTTUM NÓTUM Kæri Æskupóstur og allir hressir krakkar! Við viljum byrja á að þakka frábært blað en þó mætti vera meira af smá- sögum etir lesendur. Okkur finnst nauðsynlegt (til að frekari hnignun á ís- lenskri tungu stöðvist) að íslenska erlend nöfn frægra leikara, söngvara, hljóm- sveita, íþróttakappa o. s. frv. Við vitum vel að átakið er hafið en hví að láta stað- ar numið? Við teljum upp nokkur nöfn sem hljóma ó- líkt skemmtilegar á íslensku en ensku: Christian Slater = Stjáni slátur Andrew Ridgeley = Andri tyggjó Sharon Stone = Sara Steins Magic Johnson = Galdri Jónsson Michael Jordan = Mikki tannbursti Charles Barkley = Kalli gelt. Hvað lesið þið úr skrift- inni og hvað haldið þið að við séum gamlar? Anna og Jenný. Svar: Við teljum að þið séuð skynugar og fjörmiklar stúlkur og hafið kímni- gáfu - dálitið lausbeislaða á stundum. Við ályktuðum að þið væruð fjórtán eða fimmtán ára - en þjóð- skráin sagði annað. Eflaust hafið þið, eins og aðrir glöggir lesendur, tekið eftir því að við ís- lenskum gjarna erlend fornöfn - ef þau eiga sér samsvörun í máli okkar (og nafnið er endurtekið í texta) - en breytum ekki eftirnöfnum. Þið eruð okkur áreið- anlega lika sammála um að ekki fer vel á að enda íslenskt póstfang, ætlað íslenskum lesendum, með „lceland“... PENNAVINIR OC DÝR Kæri Æskupóstur! Hvernig get ég eignast ís- lenska pennavini í útlöndum? Þeir verða að geta lesið og skrifað íslensku. Ég vil kvarta yfir því að mér finnst allt of lítið fjallað um dýr (Æskunni. Gætuð þið haft veggmyndir af dýrum og Strandvörðum. Mér finnst Eva og Adam fín teiknimyndasaga. Eygló. Svar: Líklegasta leiðin til að eignast slíka pennavini er að fá ósk um það birta í ís- lenskum timaritum og dag- blöðum sem hafa áskrif- endur erlendis - svo sem Æskunni og Morgunblað- inu. Á árunum 1990 til 1991 voru i Æskunni tíu fræðslu- þættir um dýr: Um hamstra í 7. tbl. 1990 - páfagauka i 8/’90 - ketti í 9/’90 - hunda í 10/’90 - kanínur í 1/’91 - gullfiska Í2/’91 - kanarífugla í 3/’91 - höfr- unga í 4/’91 - naggrísi í 5/’91 - og risaeðlur (!) í 6/’91. Við sendum áskrif- endum gjarna Ijósrit af þeim greinum ef þeir óska þess. - Eflaust tök- um við upp þráðinn áður en langt um liður og fræðum um önnur dýr. Veggmyndir af dýrun- um fylgdu Æskunni - nema fjórum þeim síðast- nefndu. Auk þess hafa birst veggmyndir af hest- um (tvisvar - og þrisvar með knöpum), hvolpum, svani, lömbum, simpansa og kettlingum! L/ÓD Kæra Æska! Ég byrja á því að þakka gott blað. Ég sendi þér þetta Ijóð: ÞÚ Þú skilur ekkert, vilt ekki skilja, lokar fyrir, hlustar ekki. Þú særir mig, viljandi eða óviljandi; ég veit ekki hvort. Ekkert er sem áður, allt er breytt og verður aldrei eins og var. Ég sakna þín, sakna bross þíns, sakna hlýjunnar íaugum þínum. Ég sakna þín. Þó að þú sért nálægt er eins og þú sért langt íburtu, burtu frá mér. Kristbjörg Ólafsdóttir. ALEINN ... -OG STJÓRNIN Kæra Æska! Ég vil byrja á því að þakka fyrir frábært blað - ekki síst veggmyndina með Macauley Culkin. Getur þú sagt mér hvað hann er gamall og hvenær hann á afmæli? Viltu hafa viðtal við Stjórnina eða bara Grétar Örvarsson - og veggmynd. Er þátturinn, [ mörgum myndum, hættur? Harpa Hrund. Svar: Macauley Culkin er 12 (eða 13 ára) - eins og fram kemur i grein um hann í 4. tbl. Æskunnar 1993, á bls. 61. Við vitum ekki hver fæðingardagur hans er. Stjórnin - og Grétar og Sigríður - hafa oft verið í viðtölum, svarað aðdá- endum og birst á vegg- myndum. Ekki er þó ólík- legt að röðin komi aftur að þeim áður en langt um líður. Ef til vill verður þáttur- inn, í mörgum myndum, aftur á síðum blaðsins á næstunni. Grétar Örvars- son (3/’92) og Sigríður Beinteinsdóttir (2/’91) hafa t.a.m. léð okkur myndir af sér á ýmsum aldri í þann þátt. Kærar þakkir fyrir bréfin! Því miður getum við ekki birt allt sem okkur berst. En við geymum öll bréf lengi og förum yfir þau við undirbúning hvers tölu- blaðs til að koma til móts við óskir sem flestra. Æ S K A N 4 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.