Æskan

Árgangur

Æskan - 01.07.1993, Blaðsíða 46

Æskan - 01.07.1993, Blaðsíða 46
REGLUR SAMKEPPNINNAR ALÞJÓÐLEGA LISTASAMKEPPNIN: FJÖLSKYLDAN SÉÐ MEÐ AUGUM BARNSINS Æskunni hefur borist bréf til kynningar á samkeppni meðal barna og ungs fólks um allan heim. í því segir (nokkuð stytt): Kæru börn og ungu vinir! Sameinuðu þjóðirnar hafa hafa lýst 1994 alþjóðlegt fjölskylduár. Þess vegna efnir Alþjóðlega barnalistasafnið, í samvinnu við Barnahjálp S.Þ. og fleiri aðilja, til samkeppninnar: Fjölskyldan séð með augum barnsins. Finnst þér gaman að teikna, mála, semja Ijóð eða búa til tákn- ræna hluti úr tré eða málmum? Nú færð þú tækifæri til að segja frá því fjölskyldulífi sem þú þekkir - með listaverki. Þú getur tjáð í teikningu eða með sögu eða Ijóði hve vænt þér þykir um mömmu þína, pabba þinn, afa og ömmu og systkini þín. Þú getur lýst hvernig þér líður þegar foreldrar þínir fara eitthvað frá þér eða eru óréttlátir gagnvart þér. Ef til vill áttu þér draumsýn um hvernig fjölskyldulíf á að vera. Þegar fólk verður fullorðið gleymir það oft hvernig því leið sem barni. Þú skalt minna það á tilfinningar og hugsanir barna. Reyndu að lýsa öllu því sem þér liggur á hjarta. Ef þú teiknar eða býrð til listaverk máttu láta Ijóð eða lýsingu fylgja því. Það er mikilvægt að þú vandir þig vel og Ijúkir verkinu. Bestu listaverkin að mati dómnefndar verða sýnd víða um heim til þess að minna á ár fjölskyldunnar. Höfundar þeirra fá verðlaun og viðurkenningar. Taktu þér í hönd penna, pensil eða annað sem þarf til að skapa listaverk! Sýndu með því hvað þú hugsar, telur, óttast og vonar. Leggðu þitt af mörkum svo að fjölskyldur í öllum löndum geti lifað betra og hamingjusamara lífi en ella! Gangi þér vel! Með kærri kveðju, Rafael Goldin framkvæmdastjóri stofnunarinnar, Saga, list og menning barna. Börn og ungmenni, 2-18 ára, geta tekið þátt í samkeppninni. Þú ræður hvort þú vinnur ein(n) eða með öðrum. Þú mátt nota hvers konar efni og hvaða tækni sem er - og ræður hve stórt listaverk þú skapar. Þú mátt líka semja Ijóð, lag eða leikrit - og taka kvikmynd. Merkja á listaverkið (á bakhlið) og taka fram heiti þess - nafn höfundar (eða nöfn ...) - þjóðerni - fæðingar- dag og -ár - hvenær lokið var við verkið (nefna dag og mánuð) - heim- ilis- og póstfang höfundar og skól- ans sem hann er í. Það á að senda til: Det Internasjonale Barnekunstmuseum, Lille Froens vei 4, N-0369 Oslo - Noregi. Frestur er til 15. október. Alþjóðlega barnalistasafnið eign- ast öll réttindi til listaverkanna. Það notar þau til sýninga, útgáfu og rannsókna. Þau verða því ekki end- ursend. 5 0 Æ S K A N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.