Æskan - 01.07.1993, Síða 39
Platan „3 Years“ með „Arrested
Development“ hefur verið á lista yfir
100 söluhæstu plöturnar í Bandaríkjun-
um i hálft annað ár. Fyrir jólin skaust
„Erotica“ með Madonnu upp fyrir hana
en laut fljótlega i lægra haldi. Undan-
farna mánuði hefur „3 Years“ verið 100
sætum ofar en „Erotica“ á listanum.
Líkur benda til að plata
Bjarkar Guðmundsdóttur
seljist í 300 þúsund eintökum
í Bretlandi. Það er þreföld
gullplata. Sala í Bandaríkjun-
um og annars staðar í heim-
inum er óviss þegar þetta er
skrifað. Ýmislegt bendir til að
möguleikar Bjarkar séu tölu-
verðir í Bandaríkjunum. Til að
mynda verður gerður óraf-
magnaður („unplugged")
þáttur með henni í sjónvarps-
stöðinni MTV í vetrarbyrjun,
sams konar þeim sem var
gerður með Eric Clapton,
„Arrested Development",
R.E.M og Rod Stewart. Þá
verða margra blaðsíðna við-
töl við hana í tímaritum á
borð við „Rolling Stone“ og
„Vogue“.
Björk er orðin heimsfræg
hvernig sem sala á plöturini
hennar fer.
Hvaða mælikvarði er
plötusala annars á vinsældir?
Er Madonna vinsælli en
„Arrested Development" svo
að dæmi sé tekið? Flestir
svara þessu áreiðanlega ját-
andi.
Þlatan „3 Years" með A.D.
hefur samt selst þriðjungi
Madonna er áberandi i fjölmiðlum.
betur en „Erotica" með
Madonnu!
Þó að „3 Years“ hafi selst
betur þá náði „Erotica" víða
um heim í efsta eða næst
efsta sæti vinsældalistanna.
„3 Years“ náði í fæstum
löndum ofar en í 5.-7. sætið.
Annað dæmi: Riatan
„Metallica" með samnefndri
hljómsveit hefur selst þrefalt
betur en „Automatic For The
Þeople" með R.E.M. Engu að
síður má ráða af útvarpi og
blaðaumfjöllun að R.E.M. sé
vinsælli hljómsveit en Metall-
ica.
Þriðja dæmið: Platan „She
is the Boss“ með Mick Jag-
ger, söngvara „Rolling Sto-
nes“, seldist í 500 þúsund
eindtökum. Plötur hljóm-
sveitar Davíðs Bowies, „Tin
machine", náðu ekki 200
þúsund eintaka sölu. Til
samanburðar má nefna að
platan „Thriller" með Michael
Jackson seldist í 45 milljón-
um eintaka! Eldri plötur
Metallicu hafa selst í 5-6
milljónum eintaka. Sú nýjasta
fer eflaust yfir 10 milljón ein-
tök eins og „Joshua Tree“
með U2 og „Legend“ með
Bob Marley.
POPPOETRAUN
Heimilisfang:
Aldur:
Eftirlætis-poppstjarna/hljómsveit:
Nafn mitt er:
Hér eru settar fram þrjár
fullyrðingar. Þú merkir við
hvort þær eru réttar eða
rangar. Dregið verður úr
réttum lausnum og einn
þátttakandi fær send verð-
laun. Jafnframt verður eftir-
lætis-poppstjarna/hljóm-
sveit hans kynnt í Popp-
þættinum.
1. Söngkona „Todmobile",
Andrea Gylfadóttir, og
söngvari S.S. Sólar, Helgi
Björnsson, voru bæði í
vestfirsku hljómsveitinni
Grafík.
□ Rétt □ Rangt
2. Austfirska rokksveitin
Sú Ellen er frá Höfn í
Hornafirði.
□ Rétt □ Rangt
3. Gítarleikari Arkarinnar
hans Nóa, Sævar Árna-
son, er stjúpfaðir Bjarkar
Guðmundsdóttur.
□ Rétt □ Rangt
Æ S K A N 4 3