Æskan

Årgang

Æskan - 01.07.1993, Side 40

Æskan - 01.07.1993, Side 40
Popptíðindamaður Æskunnar á hljómleikum með „Rage Against The Machine“: BEST HEPPNUÐU HLJÓMLEIKAR ERLENDRAR HLJÓMSVEITAR í 13 ÁR. STAÐUR OC STUND: Kaplakriki í Hafnarfiröi 12. júní 1993. VI0FAN6SEFNI: Hljómleikar meö bandarískri pönk-þungarokks-rabbhljóm- sveit, „Rage Against The Machine". UMÍÖ6N: Hljómsveitin steig á svið um tíuleytið. Upphafslagið var „Take The Power Back“. Flutningurinn hljómaði nánast eins og á plöt- unni. Þannig var því varið með flest lögin. Það kom ekki á óvart. Platan er svo „hrá“ og „hljóm- leikaleg". Hljómsveitin er ótrúlega hljómmikil og „þétt“ miðað við þrjá hljóðfæraleikara, að við- bættum söngvara. Þeir eru allir mjög færir í sinni grein. Gitarleik- arinn, Tom Morello, er nánast göldróttur. Hann töfrar ótrúleg- ustu hljóð úr gítarnum, hljóð sem fram til þessa hafa helst heyrst í tölvutækjum eða öðrum tólum en gítar. Sum töfrabrögð hans er auðvelt að leika eftir þegar sést hefur hvernig hann fer að. Önnur verða vart endurtekin af öðrum. Fagtímarit um gítarleik fjalla um Tomma sem fingrafimasta og færasta gítarleikara rokksins. Hljómleikagestir geta vottað að sú kenning er ekki fjarri lagi. Pönkað þungarokks-rabb RATM er frekar einhæft. Keyrsl- an og hrynjandin eru lík frá einu lagi til annars. Laglínurnar eru bundnar af gríðarlega þróttmikl- um rabb-öskursöngstíl Zacks De La Rochas. Lögin fengu þó hvert sitt sér- kenni með fjölbreyttum tækni- brellum Tomma. Sviðsframkoma hans og Zacks var mjög fjörleg. Zack hefur ævintýralega mikið þol, bæði sem öskursöngvari og eins þegar hann þeytist á sífelld- um hoppum og hástökkum um sviðið. Miðað við hve gagnrýninn hann er á áfengisdrykkju skemmtikrafta er næsta víst að þessi 21 árs söngvari skaðar ekki eigið þol með bjórþambi. H LJ ÓMLEIK AG ESTIR: Meðalaldur hljómleikagesta var sennilega 12, 13 til 20, 21 árs. Þeir tóku virkan þátt í skemmtuninni með handasveifl- um og „slammi" (eins konar dans þar sem menn henda sér hver á annan). Lög RATM-kvart- ettsins bjóða ekki upp á mikinn fjöldasöng, nema næst síðasta lag hljómieikanna, „Killing In The Name“. Megnið af hljómleika- gestum söng sig hást í því lagi. Þá leið yfir fjölda manna. Líklega var um að kenna taugaspennu og æsingi (þetta var hámark hljómleikanna), hita og loftleysi. NIÐURSTAÐA: Listahátíð Hafnarfjarðar veðj- aði á réttan hest með vali á RATM“. Fersk, skapandi hljóm- sveit á uppleið eða nýkomin á tindinn virðist draga að sér 4-5 þúsund gesti. Reynslan sýnir það („Led Zeppelin" og „Deep Purple“ um 1970, „Stranglers" og „Clash" um 1980). Gamlar þreytulegar hljómsveitir á fallanda fæti eru varasamari. („Jethro Tull“, „Black Sabbath", „Status Quo“ o.fl.). Skipulagning og varsla voru til fyrirmyndar. Landsbyggðarfólk kvartaði þó undan því að geta ekki tryggt sér aðgöngumiða heima fyrir. Þeir áhugasömustu urðu að koma degi fyrr en ella á höfuðborgarsvæðið til að ná í miða þegar Ijóst var að uppselt yrði á hljómleikana. AE) ÖÐRU LEYTI: Hafi Listahátíð Hafnarfjarðar þökk fyrir áhugaverðustu og best heppnuðu hljómleika er- lendrar hljómsveitar hérlendis síðan „Clash“ fyllti Laugardals- höllina 1980. POPPSTJÖRNURNAR FYLGJAST VEL MEÐ ÆSKUNNI Islenskar rokkstjörnur fylgjast vel með Æskunni. Ótal dæmi staðfesta það. Hér skulu nokkur nefnd til gamans: *Nýverið fjallaði nýrokkar- inn Gunnar Hjálmarsson (fyrirliði S-h draums og Bless) um hljómsveitina Stjórnina í Pressunni. Þar staðhæfði hann að vegg- mynd úr Æskunni af „Jet Black Joe“ skreytti nú herbergi ungs fólks í stað Æskumyndar af Stjórn- inni. *Um síðustu áramót stóðu Sykurmolarnir fyrir mikilli skemmtun. Meðal auglýstra skemmtiatriða var val á „baksíðustúlku Æskunnar" í umsjón leik- ara úr kvikmyndinni Sódómu Reykjavíkur. Tímaritið Æskan kom reyndar hvergi nálægt þessari skemmtun. Syk- urmolarnir tóku nafnið bara traustataki þessa kvöldstund án þess að spyrja kóng eða prest. Það er Æskunni auðvitað upphefð að vera hampað á saklausri skemmtun hjá heimsfrægum skemmti- kröftum. Hvað segir ekki máltækið: „Tungunni er tamast það sem hjartanu er kærast." *Um daginn kom út plat- an „Saga rokksins" með rokksveitinni „Ham“. Poppþættinum var gefin þessi skýring á nafni plöt- unnar: Liðsmenn sveitarinnar voru einu sinni sem oftar að lesa framhaldsþáttinn „Sögu rokksins" í Æsk- unni. Þá verður einum þeirra að orði: „Hvernig er það, fer ekki að koma að kynningu á framlagi „Ham“ til sögu rokksins?" Eftir nokkrar vangaveltur komust þeir að þeirri nið- urstöðu að óralöng bið yrði á því. Þeir ákváðu þá að bæta úr því á þann hátt að gefa plötunni nafn í höfuðið á „Sögu rokks- ins“. 4 4 Æ S K A N

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.