Æskan

Ukioqatigiit

Æskan - 01.07.1993, Qupperneq 49

Æskan - 01.07.1993, Qupperneq 49
í SKÁmUtÁiLM f SKVsmmAL Skátakakó fyrir tvo: 2 msk. kakó - 2 msk sykur 1 dl vatn - 4 dl mjólk örlítið salt. Kakó og sykur er hrært saman í potti og vatninu bætt út í. Síðan er það hitað og hrært þar til sýður. Þá er mjólkin sett út í og þegar sýður aftur er bætt út í sykri eftir smekk, svo og salti. Mörgum þykir gott að setja smjörklípu út í, einkum í köld- um vetrarferðum. Um hádegið áttum við að vera búin til brottfarar svo að við flýttum okkur að taka til og koma okkur í rútuna. Ferðinni var svo heitið heim eftir vel heppnaða útilegu. Hjördís Dögg Grímarsdóttir. Hæ! Ég ætla að segja frá útilegu skátaflokksins Tjúlla á Akranesi í skátaskálanum í Skorradal. Við fórum niður í skátahúsið og biðum þar eftir rútunni. Biðin varð dálítið löng því að alltaf var verið að fresta brottförinni vegna þess að það var hellirigning og þrumur og eldingar. Það endaði með því að á- kveóið var að fara daginn eftir. Sum- ir fóru heim en aðrir urðu eftir og ætluðu sér að gista í skátahúsinu. Við skemmtum okkur eins og sannir skátar gera. Loks komst á ró og skátarnir sofnuðu. Morguninn eftir var komið gott veður. Við lögðum snemma af stað og tveir aðrir flokkar fengu að fara með okkur. Bíllinn sat fastur svo að við þurftum að labba niður í skálann. Við vorum tuttugu mínútur á leiðinni þangað. Við byrjuðum á því að fá okkur að borða. Eftir matinn var ákveðið að fara í fjallgöngu. Til gamans tókum við plastpoka með svo að við gæt- um rennt okkur niður. Við vorum þrjá tíma á leiðinni upp. Þegar við vorum komin dálítið langt upp í hlíðina var snjórinn orðinn sleipur og þokan mikil. Ef við hefðum farið lengra hefðum við getað villst. Við renndum okkur því niður. Það var svolítið vont að rekast á stein en fjallaferðin var Hér er kvöldvaka og þeir Einar Mýrdal, Einar Ottó og Bjarki eru að syngja. eftir var frítími. Þá var tekinn upp gítar og sungin nokkur lög. Margir voru þreyttir eftir gönguna svo að þeir lögðu sig. Þegar leið á daginn var sveitar- foringinn með dagskrá fyrir léskát- ana. Þeir áttu að læra skyndihjálp. Eldri skátarnir sáu um að skipta í hópa og koma þeim í réttar stöður. Léskátarnir voru fljótir að læra svo aó við kenndum þeim að bregðast rétt við þegar einhver slasast. Þá þurfti krakka til að leika slasað fólk. Við vorum látin liggja úti og bíða eft- ir hjálp. Þegar æfingunum lauk voru margir orðnir svangir svo að við eld- uðum mat. Eftir matinn héldum við kvöldvöku. Það voru sýnd leikrit, farið í leiki og sungið. Síðan buðu foringjarnir okkur að fara í næturleik. Það var farið upp í fjall í leit að ræningjum. Eldri skát- arnir léku þá. Eftir mikla leit fundum við þá loks. Og þá voru allir orðnir þreyttir. Við fórum inn og þeint í pokana okkar. Það voru sagðar draugasögur og fyrr en varði voru allir sofnaðir. Sólin skein og nýr dagur rann. það skemmtileg að við tókum varla eftir því. Við fengum okkur heitt kakó og kex þegar við komum í skálann. Á Á kvöldvökunni i Öskjuhlíð J *J it JÚL=2 J 'J '/.UíilZLLl 'Ji t JJti Skátafélögin í Rekjavík ætluðu að kveikja varðeld í sunnanverðri Öskjuhlíð í júní síðastliðnum. Varðeldurinn breyttist í kvöldvöku vegna þess að ekki fékkst leyfi til að kveikja í bálkestinum. Skátarn- ir létu það ekki á sig fá að þeir fengu ekki að hafa logandi eld að ylja sér við. Þarna voru samankomnir skát- ar sem stefndu allir á landsmótið í Kjarnaskógi, „ÚT í VERÖLD BJARTA“. Við varðeldinn var sungið og leikið eins og skáta er háttur. Eftir hann var boðið upp á skátakakó. Æ S K A N S 3

x

Æskan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.