Valsblaðið - 01.05.1989, Page 9
Reykjavíkurmeistarar 6. flokks 1989.
von um að hann klæðist Valsbúningnum aft-
ur við fyrsta tækifæri.
Yngri flokkum félagsins gekk vel á síðasta
ári, eins og árin þar á undan, enda hefur
deildin reynt að byggja markvisst upp sína
yngri flokka. Þjálfarar voru Hreinn Þorkels-
son, Svali Björgvinsson, Ragnar Þór Jóns-
son, Björn Sigurðsson, Sigvaldi Ingimundar-
son og Ari Gunnarsson: Hæst ber árangur
Unglingaflokks (2.fl.) en hann varð Reykja-
víkur- og íslandsmeistari á síðasta ári og eru
15 ár frá því að 2.fl. varð síðast íslandsmeist-
ari. Allir aðrir yngri flokkar tóku þátt í úr-
slitabaráttunni um Islandsmeistaratitla og
stóðu sig mjög vel þótt fullnaðarsigur hafi
ekki unnist.
Um síðustu páska fór rúmlega 20 manna
hópur frá Val í keppnisferð til Danmerkur.
Það voru strákar á aldrinum 13—15 ára. Var
þetta í fyrsta skipti sem yngri flokkur í körf-
unni fer til keppni erlendis og áreiðanlega
ekki það síðasta því svona ferðir eru snar
þáttur í að búa til góða körfuknattleiksmenn.
Frá þessari ferð er nánar greint annarsstaðar
í blaðinu.
í aprílmánuði var haldið í íþróttahúsum fé-
lagsins körfuboltamót fyrir9—11 árakrakka.
Boðið var til þátttöku 4—5 bekkjum grunn-
skólans í Reykjavík. Mótið var haldið í sam-
vinnu við Austurbakka h.f. og bar heitið
NIKE-MÓTIÐ 1989. Tilgangur mótsins var
að kynna ungum krökkum íþróttir og um leið
að reyna að laða þau að Val. Um þetta mót er
fjallað annarsstaðar í blaðinu.
Körfuknattleiksdeild Vals óskar öllum
Valsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á
nýju ári jafnt innan vallar sem utan.
Róbert Magnússon, viðurkenning fyrir framfar
ir í 8. flokki.
JAMESON
REYKSKYNJARI
GETUR VERIÐ
LÍFGJAFI
Margar geröir fyrir
mismunandi
staðsetningar. Minni um
sig en eldri gerðir.
Allar gerðir
eldvarnatækja. Þjónustum
slökkvitæki.
HAGSTÆTT VERÐ.
LEITIÐ UPPLÝSINGA.
□ ElDVARNAMIDSTOfllN HF
ÓLAFUR GlSLASON & CO. HF.
SUNDABORG 22 SlMI 91-84800
9