Valsblaðið - 01.05.1989, Side 25
bikun og frágang bílastæða að Hlíðarenda.
Valur ber allan kostnað vegna þessara fram-
kvæmda, sem nú er að mestu lokið, en
Reykjavíkurborg fjármagnar þær og í samn-
ingnum er ráðgert að Valur fái styrki til þess
að greiða þennan kostnað. í samningnum eru
ýmis ákvæði um að borgin kosti frágang við
Bústaðaveg, flutning trjáplantna innan Hlíð-
arenda auk fleiri atriða sem félagið telur sér
hag að.
ÍÞRÓTTA- OG VALLARHÚS.
Nú í haust var gólfið í gamla íþróttasalnum
endurnýjað. Dúkur sem lagður var yfir hið
upphaflega gólf salarins var ónýtur og úr-
bætur nauðsynlegar. Lagt var nýtt parket.
Framkvæmdin tókst mjög vel, og er það ekki
síst þakkað því hversu vel var vandað til verka
við byggingu hússins í upphafi.
Framkvæmdum hefur verið haldið áfram
við vallarhúsið nýja eftir því sem aðstæður
hafa leyft. Bað- og búningsaðstöðu hefur ver-
ið komið upp í kjallara hússins og um þessar
mundir er verið að ljúka framkvæmdum við
eldhús og félagsaðstöðu á annarri hæð.
Gengið var frá nýju dælukerfi fyrir safn-
vatn sem myndast í grunni hússins.
Viðgerðum á þaki nýja íþróttahússins er
lokið, en þaðláundirskemmdum vegnaleka.
FJÁRMÁL.
Eins og áður var vikið að hefur mestur tími
stjórnarinnar farið í fjármálin. Væntingar
manna um greiðslur lögboðinna og sam-
þykktra styrkja ríkisins og Reykjavíkurborg-
ar hafa ekki gengið eftir. Ófullnægjandi fyr-
irgreiðsla af hálfu ríkis ogborgar olli því að
fjárhagsstaða félagsins þyngdist mjög eftir
því sem leiðá starfsárið 1988. Byggingafram-
Rcykjavíkurmeistarar 3. flokks kvenna. Stelpurnar sigruðu í sínum riðli kcppninnar á íslandsmótinu.
borg til Vals vegna óuppgerðra byggingar-
styrkja. Með þessu láni frá Reykjavíkurborg
tókst að koma vanskilaskuldum vegna fram-
kvæmda í skil og er nú lokið við endurskipu-
lagningu framkvæmdaskulda.
Samkvæmt ársreikningi Vals fyrir árið
1988 varð hagnaður á rekstri félagsins og var
eigið fé þess í árslok 167,9 milljónir króna.
SUMARBÚÐIR í BORG.
Vorið 1988 var tekin upp sú nýbreytni að
halda íþróttanámskeið fyrir börn undir nafn-
eftir aldri og kennsla miðuð við getu hvers
hóps. Kennd eru undirstöðuatriði í hand-
bolta, fótbolta og körfubolta auk annarra
íþrótta og leikja. Börnin fóru reglulega í sund
og út á báta á Skerjafirði. Hver hópur fór
einnig dagsferð í skíðaskála Vals. Sumarbúð-
ir í borg voru starfræktar með óbreyttum
hætti sumarið 1989.
Torfi Magnússon hefur veitt sumarbúðun-
um forstöðu tvö undanfarin sumur. Félagið
væntir þess að geta haldið þessu starfi áfram
á komandi árum.
Reykjavíkurmcistarar 5. flokks í fótbolta 1989.
kvæmdir voru að umtalsverðu leyti fjár-
magnaðar með skammtímalánum og
skammtímalán gerð upp með nýjum skamm-
tímalánum. Vorið 1989 samþykkti borgarráð
Reykjavíkur að veita félaginu lán að fjárhæð
kr. 20.000.000. Lánið er til 10 ára, verðtryggt
og ber fasta 3% vexti. Afborganir lánsins
munu tengjast greiðslum frá Reykjavíkur-
inu „Sumarbúðir í borg“. Sumarbúðirnar
vom starfræktar í tvo og hálfan mánuð, en
haldin voru fimm hálfs mánaðar námskeið.
Þátttakendur vom um 700.
Leiðbeinendur á hverju námskeiði voru
10-12, mest allt íþróttakennarar eða íþrótta-
kennaranemar. Þátttakendur fengu heita
máltíð í hádegi. Börnunum er skipt í hópa
ÝMISLEGT.
Árshátíð félagsins 1988 var haldin 11. maí.
Hefðbundið afmæliskaffi að Hlíðarenda féll
niður. í þess stað var efnt til árshátíðar undir
stjóm Baldvins Jónssonar. Árshátíðargestir
hittust að Hlíðarenda og fóru þaðan í áætl-
unarbíl á veislustað. Árshátíðin tókst mjög
vel og aðsókn var góð.
11. maí 1989 var þess minnst að 50 ár voru
liðin frá því Valur festi kaup á Hlíðarenda.
Efnt var til afmælisveislu í hinu nýja vallar-
húsi félagsins. Kom þar margt góðra gesta.
Jafet Ólafsson, varaformaður, rakti sögu
Hlíðarendakaupanna, Jón Gunnar Zöega,
formaður Vals og Davíð Oddsson, borgar-
stjóri, fluttu ávörp.
Herrakvöld Vals 1988 var haldið í Viðey í
október. Tókst hátíðin mjög vel.
Herrakvöld Vals 1989 var haldið í nýja vall-
arhúsinu að Hlíðarenda snemma í nóvember.
Skemmtunin var vel sótt og söfnuðust á henni
peningar, sem nýttir hafa verið til þess að
koma upp þeirri félagsaðstöðu í nýja vallar-
húsinu sem verið er að taka í notkun um þess-
ar mundir.
Grímur Sæmundsen hefur með dyggri að-
stoð þeirra Guðmundar Þorbjörnssonar,
Stefáns Gunnarssonar og Jafets Ólafssonar
haft veg og vanda af þessum herrakvöldum.
Valsblaðið 1988,40. tölublað, kom út í des-
embermánuði. Umsjón með útgáfu blaðsins
að þessu sinni höfðu körfuknattleiksdeild og
handknattleiksdeild. Ritstjóri var Þorgrímur
Þráinsson.
25