Valsblaðið - 01.05.1989, Side 70
íslandsmeistarar 2. flokks 1989. Steinar Adolfs-
son, fyrirliði, tekur við bikarnum af Gylfa Þórð-
arsyni, stjómarmanni KSÍ. Valsmenn voru vel
að titlinum komnir.
Ögmundur Viðar Rúnarsson, markvörður 5.
flokks Vals, stendur i ströngu í leik gegn KR sem
tapaðist illa.
VALSMAÐUR
ÁRSINS 1989
Ragnheiður Víkingsdóttir, fyrirliði meist-
araflokks Vals i knattspyrnu var valinn „Vals-
maður ársins 1989” og er hún vel að viður-
kenningunni komin. Ragnheiður hefur verið
þátttandi í meistaraliði Vals alveg frá því fé-
lagið hóf þátttöku í kvennaknattspyrnu.
Ragnheiður er margfaldur íslands- og bikar-
meistari og hefur verið í fararbroddi sigur-
sæls liðs í rúman áratug. Það eru leikmenn,
sem léku undir stjórn Youri Ilitshev, sem
standa að valinu og gefa bikarinn sem kallast
vitanlega „Youra-bikarinn”. Þetta er í annað
sinn sem bikarinn er veittur. Sá leikmaður,
forystumaður, þjálfari eða annar sem hefur
verið framúrskarandi í leik eða starfi og
stuðlað að jákvæðri framþróun innan Vals til
lengri eða skemmri tíma — í anda dr. Youri
Ilitchev, hlýtur bikarinn.
Alls voru þrír einstaklingar tilnefndir í
kjöri á Valsmanni ársins en auk Ragnheiðar
voru það: Þorgrímur Þráinsson, fyrirliði
meistaraflokks karla í knattspyrnu og Eggert
Magnússon, fráfarandi formaður knatt-
spyrnudeildar. Þeir voru sömuleiðis báðir til-
nefndir í fyrra.
EGGERT
MAGNÚSSON,
FORMAÐUR KSÍ
Á dögunum lét Eggert Magnússon af for-
mennsku í knattspyrnudeild Vals því hann var
kjörinn formaður Knattspyrnusambands ís-
lands — KSÍ — á síðasta ársþingi sambands-
ins. Eggert hefur gegnt formennsku í knatt-
spyrnudeild Vals frá árinu 1984 og unnið þar
frábært starf. Þótt Eggert sé horfinn til ann-
arra starfa, er hann ekki langt undan og mun
ávallt vera hægt að treysta á hann í einu og
öllu. Eggerti er óskað velfarnaðar í nýju starfi
en hann hefur sannarlega metnaðinn og
kraftinn til þessað rífa KSÍ til vegs og virðing-
ar. VALSBLAÐIÐ þakkar Eggert gott sam-
starf á undanförnum árum og óskar honum
allra heilla.
VALSMENN
Munið eftir árshátíð Vals 3. mars 1990.
lakið frá kvöldið.
Nánari upplýsingar síðar.
Eggert Magnússon.
70