Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1911, Blaðsíða 126
ÁGRIP AF REGLUGJÖR'l
uin ráðstöfun jmálma í Norðvestur - Canada
KOLALAND---------Kolanámu réttur geturrjeigður orðið um
tuttugu og eitt ár, gegn $1.00 afgjaldi af hverri ekru á ári. Engum
einstaklingi eða félagi er selt n.eir en 2,560 ekrur. Auk þess skal
kaupandi greiða stjórnargjald (Royalty) af því, sem úr námunum er
tekið eftir því sem ákveðið kann að verða með leyndarráðs-samþykt
við og við. *
MÁLMGRJÓTÍ(quartz).---------Einstaklingar, sem erif átján'. ára
að aidri og)þar yfir, og hlutafélög,er liafa ,,Free Miner’s“ skírteini,
geta látið skrifa sig fyrir námubletti eða lóð.
Skírteinishafi, sem uppgötvað hefir málm á einhverjum stað, má
afmarka sér þar námalóð, sem sé 1500 fet á lengd og 1500 á breidd.
Gjaldið fyrir íið riía einhvern fyrir námu lóð er $5.00.
Sá, sem þannig hefir numið námu lóð, verður að eyða að minsta
kosti $100.00 á ári í hana, eða borga þá upphæð til hlutaðeigandi
,,Mining Recorder“ í staðinn. Þegar námuhafi hefir þannig eytt
$500.00 eða borgað þá, má hann, eftir að liafa látið mæla lóðina* og
uppfyllt aðra skilmála, kaupa landið fyrir $1 ekruna.
Gullsands eða ,,Placer“ námulóðir eru vanalega 500 fet á lengd
og frá ] ,000 til 2000 fet á breidd; innritunargjald fyrir þær er $5.00
hverja, ekki mínna en $100.00 verður að eyða í hana á ári hverju.
Sá sem leyst hefir “Free Miner’s“ skírteini getur einungis
fengið tvö vélargiaftrar-leyfi fyrir fimm milur hvert, er nál yfir tutt-
ugu ár, og má innanríkis-raðgjafinn endurnýja þau ef honum sýnist.
Leyfishafi skal hafa eina graftarvél í gangi innan eins sumars
frá dagsetningu leyfisins fyrir hverjar fimm mílur, en þegar ein
staklingur eða félag hefir fengið meir en eitt leyfi, nægir ein grafar-
vél fyrir kverjar fimm mílur, eða broi úr þeim. Afgjald af hverri
mílu, sem þannig er leigð, er $10.00 á ári. Auk þess greiðist
stjórnargjald, er nemur tveimur oghálfum af hundraði, af því sem
upp er grafið eftir að það nemiir $10.000 að verðhæð.
W. W. CORY,
Deputy oí the Minister of the* Interior.