Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1918, Side 7
ALMANAK 1918
5
Litur loftsins um sólsetur.
Þegar himininn er gráleiiur og myrkur um sólsetur, eóa slái
á, hann grænum eóa gul-grænum lit, er regn í vændum. Rautt
sólarlag með skýjum, er veröa myrkari, þegar fram á nóttina líður
boðar einnig regn.
Baugur um sólina.
Með baug um sólina meinum vér hina stóru hringi, eða hring-
parta, er liggja um sólina. Þegar baugurjsést um?sólina eftir gott
veður, má búast við regni.
Kóróna.
Með kórónu meinum vér smáa hringi, er sjást oft um sólina
eða tunglið. Þegar kórónan fer minkandi, bendir það árregn,
stœkki hún, er fagurt veður í vændum.
Regnbogar.
Regnbogi að morgni dags er álitinn boða regn ; regnbogi að
kveldi, fagurt veður.
Litur himinsins.
Þegar þykkur, djúpur blámi sést á himninum, jafnvel þótt
hann sjáist gegnum skýjað loft, boðar það fagurt veður ; verði
bláminnfljósari (hvítari), er stormur í nánd.
Þoka.
Þokur benda á staðviðri. Morgunþoka er vanalega horfin um
hádegi.
Skafheiður himinn.
Þegar gufuhvolfiS er óvanalega skírt, og mjög stjörnubert
og þær sýnast eins og deplar, er regn í vændum.
Skýin.
Þegar vér athugum skýin, gefum vér gætur að, hvers konar
ský það eru, hvernig þau hreyfast og hvernig þau eru í lögun.
Ský þau, er menn oft nefna “hestatögl” köllum vér þráðaský
(Cirri). Einkenni þeirra er, að þau sýnast eins og þunnur vefur,
er hangir lauslega saman eins og tagl á hesti, eða þau sýnast flétt-
uð saman eins og hin fjarlægu ský, er mynda sólarhringina. Litl-
ar, reglulega myndaðar þyrpingar af skýum þessum sjást oft fyrir
stöðugu blíðviðri. En þráða-ský eru líka stundum fyrirboði
storms. Þegar þau boða storm, eru þau vanalega þéttari (fleiri)og
hliðar þeirra skörðóttar, og þá verða þau oftast að hvítleitum,
löngum skýbakka. Ský þau er alment eru kölluð “baðmullar-
sekkir", eða “þrumuhöfuð’, köllum vér skýja-þyrping (Cumulus).
Þegar þau sjást um heitasta tíma dagsins, en hverfa með kvöld-
inu, er framhaldandi blíðviðri í vændum. Þegar þau aukast
skyndilega, síga hægt niður í gufuhvolfið, og hverfa ekki undir
kvöldið, mun brátt von á regni. Þegar sérstök smáský virðast
eins og slitna frá þeim, má búast við skúrum. Ský þau er sjást
vanalegast eftir miðnætti, sýnast liggja marflöt og taka yfirfmikið
svæði.boða fagurt veður. Lítil svört vindaský eru fyrirboði regns.