Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Side 48
42
fremr aðrar 54000 kr., og skyldi vöxtunum af })eim varið
til styrktar konum, er stunda nám við háskólann. £ st. 500
(9000 kr.J gaf hann félagi því, sem stofnað er til að
fyrirbyggja illa meðferð á skepnum, og aðrar 9000 kr.
félagi einu til endrhóta á byggingarskilyrðum jarða.
Stjúpdóttur sinni gaf hann £ st,. 9000, en forlagsréttinn að
riturn sínum seldi hann i hendr John Morley, inum al-
kunna útgefanda tímaritsins „Fortnightly Review“; skyldi
hann sjá um að selja forlagsréttinn, en fé því, er fyrir
kæmi, skyldi varið til að styðja tímarit, er tæki upp
ritgjörðir frá mönnum af öllum flokkum, og þar sem
engu væri frá bægt fyrir skoðana sakir; enda skyldi
enginn mega rita nafnlaust í það tímaiit. J. Ó.
Fyrir vestan lands lög og rétt.
Ferðamlnning
eftir
3óiv 0i’a|oicnt.
Það var snemma í septemher 1874. Við vórum þrír
íslendingar á ferð: óg, Ólafr Ólafsson frá Espihóli og
Páfl heitinn Björnsson, systursonr minn. Við vórum á
leiðinni til Alaska, og vórum komnir vestr gegn um
Mormónanna land og vestr á eyðisandana í Nevada; það
er ekki blómleg hygð, sem jámbrautin liggr þar yíir,
heldr tómr sandr, smágjör, rennsléttr, eyðilegr, endalaus
sandr, þar sem augað sér ekkert lífsmark eða merki til
mannabygða, nema fáein timbrhús á hverjum staðnáms-
stöðtmm; á sumurn stöðvunum ekki nema einn eða tvo
fjalaklefa; þar er þá heldr ekki staðið við, nema til að
taka kalt vatn til vélarinnar og, ef til vill, til að taka kol.
Um farþega til slíkra stöðva eða frá þeim er varla
að tala. Á sumum öðrum stöðvum er aftr ofrlítið meira
um að vera, einkum þar sem kolanámar eða. silfmám-
ar eru í nánd. Þar er stundum ofrlítið þorp við brautina.
Þar er þá staðið við nokkrar mínútur til matmáls. Þar
em oftast eitt, tvö eða þrjú veitingahús, ekki að visu
af „finasta11 taginu, en með stórlátum hótels-nöfhum.
Svo eru þar og einatt nokkrn.r sölúbúðir, því að mangar-