Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Blaðsíða 57
51
kúratóra,“ doktóra, lirossaprangara og handve rksmenn, sem
alt af lofa svo góðu, en aldrei standa við orð sín, og
mundi þeim vera hægðarleikur að ljúga sig inn í Slæp-
inga-land.
Sú, sem þar vill lærður heita, verður að hafa gengið í
skóla hjá einliverjum drussa. Þess konar stúdentar munu
og vora til, ef vel er leitað, hér 4 landi, en þeir fá hvorki
þökk né heiður. Þar að auki verður liann að vera let-
ingi og átvagl, og eru hér þrjár fagrar listir saman komn-
ar. Eg þekki einn eða tvo og kannske fleiri hérna,
sem gætu orðið prófessórar hvenær sem vera skyldi.
Hver, sem er starfsmaður, hver, sem gjörir ið góða og
forðast ið illa, hann verður óþokkaðm- og svívirtur af
öllum landsbúum og flæmdur i útlegð. En sá, sem er
fúrtur og fáfræðingur, heimskingi og hrokagikkur, hann
verður þar í landi talinn sannur aðalsmaður og sæmdur
með krossum, stjörnum og heiðurstitlum. S4, sem ekki
kann nokkurn hlut nema að sofa, éta, drekka og spila,
er gerður að greifa. En sá, sem þjóðin eptir alsherjarleg-
um atkvæðarétti kemur sér niður 4, að sé latastur allra
og óduglegastur til als góðs, hann verður konungur yfir
öllu landinu og fær stórkostlegan lífeyri.
Nú vitið þið, hvernig Slæpinga-land er. Hver, sem þangað
vill ferðast, en þekkir ekki veginn, getur spurt. einlivern
blindan; málleysing er líka gott að spyrja, því hann segir
víst aldrei rangan veg.
En umhverfis alt landið er fjallhár múr úr hnausþykk-
um hrísgrjónagraut. Vilji nokkur komast inn eða út
aptur, þá verður hann fyrst að éta sig þvert í gegnum
múrinn.
Hversvegna er bangsi snubbóttur fyrir emlann ?
(ÞjóSsaga).
Björninn mætti einu sinni tóu, sem kom 4 móti honum
og bar fiskibagga i kjaptinum; „hvaðan heflr þú fengið
þetta?“ sagði hjörninn. „Jeg hef fiskað það, herra bangsi!“
Þ4 þókti birninum líka gaman að læra að fiska og bað
tóu segja sér, hvemig hann ætti að fara að. „Það er