Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Blaðsíða 78
72
—Fólk, eem lifir í hjónabaadi, verðr eldra en ógift fólk,
65 menn af 1000, eða 67a af 100 giftast Flest fólk
giftist i júnl og desember.
—Börn, sem að vorinu fæðast, eru hraustari, en þau,
sem fæðast á öðrum árstímum.
—Flestir fæðast og deyja að nóttu til.
— Viöburðimir eru skelin, bug'sjónimar kjaminn.
— Hver eyrir, sem þú eyðir til ónýtis, er stolinn af
velferð konu og bama.
— Jtdbiti nokkur þrástarði svo á íríða yngismey, að hún
stokkroðnaði. „Augnaráð mitt hefir málað rósir á vanga
þér“, sagði hann; „má ég ekki lesa þær?“ „Sá, sem
sáir“, svaraði hún, „hefir rétt til að uppskera“.
— Drykkjuskapr er sjálfskapar- vitfirring, segir Seneca.
— Spartverjar höfðu þann sið, til að vekja hjá æsku-
lýðnum viðbjóð á drykkjuskap, að veita þrælum sínum
vín endr og sinnum á torgum úti og gjöra þá drukna,
svo að in uppvaxandi kynslóð, sem sómi og heill þjóð-
veldisins skyldi vera undir komin í framtiðinni, skyldi
með eigin augum fá að sjá Jsmán og niðurlægingu
drykkjuskaparins, hversu hann sviftir menn skynseminni
og afskræmir Hkamann.
— Enginn er svo fáfróðr, að ekki þekki skyldu sína.
— Útbreiösla höfuðmálanna. Að minstakosti 90 millí-
ónir manna tala ensku; eitthvað um 75 mill. þýzku;
55 mill. spænsku, en að eins 45 mill. frakknesku.
— Bindindi er sparisjóðr, sem menn leggja aura inn i
og fá krónur út úr i staðinn aftr.
— Dímarinn: Er það satt, Páll, sem yðr er hér borið
á brýn að liafa sagt, að Pótr væri þjófr, lygari og
svikari ? — Páll: Engar brigður ber ég á að það sé satt;
en ég hefi aldrei sagt það, herra dómari“.
— Saltavatnsborg er heilnæmborg — ákaflega heilnæm.
Þeir sögðu mér þar i borginni, að þar væri að eins einn
læknir, og hann væri tekinn fastr hvern róttardag sam-
kvæmt flakkaralögunum og kærðr fýrir, að hann hefði
„enga sýnilega atvinnu11. Svo segir Mark Twain að minsta
kosti. [J. Ó.J