Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Page 51

Almanak fyrir hvern mann - 01.01.1884, Page 51
45 una, til að kaupa okki- á hana; þeir Ólafr og Páll ætluðu að bíða á meðan i vagninum. Eg gekk frá vagnstöðvunum yfir auðan völl, svo sem hálfa teigslengd; þar var veitingahús andspænis við stræti, er eigi var húsað nema á aðra lilið. Ætlaði ég þar íyrst inn; en þaðan var svo mikinn hávaða að heyra, að ég kaus heldr- að ganga lengra fram eftir strætinu og vita, ef ég fyndi ekki annað liús; fann ég það hrátt og keypti bjórinn, reikaði svo hægt sömu leið til baka og litaðist um kring. Eg kom aftr að fyrra veitingahúsinu andspænis vagnstöðvunum. Þar vóru vængjahurðir á dyrunum og vóru háðir vængimir opn- ir. Itétt í þessu bar þá þar að Pál og Ólaf og inn þjóðverska mann. Hafði hann stungið upp á því að þeir skyldu koma upp í bæinn og litast um, meðan við væri staðið, þvi að þeir mundu, livort sem væri, ekki fara að borða, fyrri en vagn- lestin færi ó stað aftr; sjálfr kvaðst hann liafa borðað um morguninn, áðr en hann steig á vagn. Þeim hafðiþóttþetta snjallræði, og með þvi að enn var fjórðungr stundar eftir, þótti þeim of snemt að liverfa þegar aftr til vagns og vildu fá mig með, enda varég þegarfús til þess. Þjóðverjinn segir svo alt í einu: „Nei, sko þennan! Hann er við skál karlinn. Hann er víst kominn með skildinga úr námunum og er nú að svalla þeim út“. Okkr varð öllum lítið inn i húsið, þvf að við sáum að liann liorfði þangað. Þar var skenkiborð fyrú gafli, en gólf allrúmlegt fyrir fram- an og á því smáborð mörg og stólar. Við eitt borðið innarlega við miðjan vegg til hægri handar, er imi var gengið, sat maðr fyrir miðju borði og snéri andliti að dyrmn. Maðrinn var dauðadrukkinn að sjá og ólireinlega til fara, fötin nokkuð rifin og flakandi skyrtan í hálsmálið; hann var svarthár með mikið skegg og flókahattkúf flatkollóttan og barðabreiðan á höfði; kollrinn var allr rifinn og stóðu lokkamir út um götin. Nú þótt. maðrinn væri auðsjáanlega ógreiddr, þá var það varla einleikið, hve undantekningarlaust lokkr af hárinu stóð út um hvert gat á hattinum, og vakti það þegar athygli mína. Maðrinn hafði spil fyrir framan sig og stórar hrúgur af silfrpeningum, gullpeningum og banka-

x

Almanak fyrir hvern mann

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak fyrir hvern mann
https://timarit.is/publication/405

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.