Afturelding - 01.04.1979, Qupperneq 3
Efnisyfirlit:
(Jtgefandi:
Blaða- og bókaútgáfan,
Hátúni 2, Reykjavík.
Sími 91-20735
Framkvæmdastjóri:
Guðni Einarsson.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Einar J. Gislason.
Ritnefnd:
Daníel Glad.
Hallgrímur Guðmannsson.
Afturelding kemur út ársfjórðungslega,
32 síður hverju sinni.
Árgjald: 1800krónur.
Verð í lausasölu: 600 krónur.
Árgjald erlendis: 2300 krónur
Gjalddagi er I. apríl.
Utanáskrift:
AFTURELDING
Pósthólf 5135,
125 Reykjavík.
Póstgíró: 16 66 69
Setning og prentun:
Prentstofa G. Benediktssonar.
Forsíðumynd:
■d.itla hljómsvcitin“ í Fíladelfiu á Akurcyri
1946. Frcmri röð f.v.: Hulda Sigurbjörnsdótt-
•r, Barbro Jutterström, Sigurlaug Kristins-
dóttir. Aftari röð f.v.: Jóhann Pálsson, Ás-
firímur Stefánsson, Hólmfriður Guðmunds-
dóttir.
Bls.
4 Vitnisburðir
6 Hvítasunnumenn á íslandi
14 Vitnisburðir
16 Ávöxtur Andans
19 Skírarinn í Heilögum Anda
20 Gjafir Andans
26 Ritningarstaðir um
Heilagan Anda
bessi Afturelding er tileinkuð verki Heilags Anda í lífi og
starfi kristins fólks á íslandi um þessar mundir.
Heilagur Andi er berandi kraftur kristninnar í dag. Fyrir-
heiti Jesú Krists um úthellingu Andans uppfvllist okkar á
meóal og sýnir að Postulasögunni er ekki lokið . . .
í þessu blaði segja nokkrir einstaklingar frá reynslu sinni af
Heilögum A nda. Þessi reynsla er ekki einskorðuð við ák veðnar
kirkjudeildir, heldur „alla þá, sem Drottinn Guð vor kallar til
sín “. Það staðfestist okkar á meðal að Drottinn úthellir af anda
sínumyfir allt hold.
í þessu blaði greinir frá fyrstu árum Hvitasunnuhreyfingar-
innar hér á landi. Því efni verða vitanlega ekki gerð full skil í
stuttri tímaritsgrein, en sérhverferð hefst á einu skrefi.
Frœðandi grein Jóhanns Pálssonar um gjafir Heilags A nda
kemur mörgum til góða, því við þörfnumst þess að gjafir And-
ans verði virkari í trúarlífi þjóðarinnar.
Að lokum skal lesendum bent á tvennt.
Annars vegar er þátturinn SPURT OG SVARAÐ. Verið
ekki feimin við að senda inn spurningar um andleg mál. Hins
vegar minnum við á að okkur þykir alltaf vœnt um að fá bréf
frá lesendum blaðsins og að þeir tjái sig um efni og innihald
þess.
Megi Guð blessa ykkur þetta blað.
Guðni Einarsson.
3