Afturelding - 01.04.1979, Blaðsíða 23

Afturelding - 01.04.1979, Blaðsíða 23
□ (•reining Anda. Biblían talar um margskonar óhreina anda, sem eru i heiminum, og afvegaleiða og eyðileggja mannanna börn. Lygiandar eru mjög skæðir, þeir eiga svo gott með að villa um fyrir fólki, þeir geta komið svo sakleysislega fyrir og dulið sitt falska eðli. Þeir geta jafnvel tekið á sig trúarlegt yfirbragð og yfirskin guðhræðslu. Þá þarf opinberun Guðs Anda til að sjá þá í gegn og afhjúpa þá. Við finnum þessa lygianda í munni falsspámanna á tíð Gamla testa- mentisins, í I. Konungab. 22: 19 — 23. Þar stóð Guðs- maðurinn Míka einn á móti fjögur hundruð lygimæl- endum. Slíkir andar eru það, sem tala í gegnum villu- kennendur nútímans, og boða í gegnum þá afneitun á Guðlegum innblæstri Biblíunnar og óskeikulleika nennar, á Guðdómi Krists, á líkamlegri upprisu Hans, á endurkomu Hans, einsogN. T. boðar hana, og á mörgum öðrum höfuðsannindum kristindómsins. Þvi er það nauðsynlegt fyrir hvern, sem vill framganga í sannleik- anum og iðka réttlætið, að lifa Heilags Andafylltu lífi. Spásagnarandar eru einnig mjög viðsjárverðir og hættulegir. Þegar Guð starfar og úthellir Anda sínum, Loma þessir andar, til þess að trufla og eftirlíkja þvi sem Guð er að gjöra. Þessir andar hafa hæfileika til að opin- hera það, sem leynt er og jafnvel að segja fyrir um hið °komna. Stundum segja þessar vitsmunaverur sannleik- ll'in. T.d. þernan, sem greint er frá i Postulasögunni, 16: 'h — 17. En að öllu jöfnu boða þeir uppspunnar skrök- sögur. Þessir andar hafa sterkar hvatir til að upphefja nienn, og fela sínar fölsku aðferðir undir blæju guð- rækninnar. Það hafa verið á öllum tímum manneskjur, Se'Ti með dulrænum kúnstum hafa reynt að líkja eftir Guðs sanna verki. Sjá: 2. Mós. 7: 11. Sem upphefja sjálfa Slg og státa af sýnum sínum." (Kólossubr. 2: 18.) 1 staðinn fyrir að heyra hvað Andi Drottins segir til safnaðanna, hafa slíkar persónur með hugmyndaflugi S|nu og óskhyggju lagað til merkilegan boðskap, sem þeir selja jafnhált Guðs orði. Til þess að sjá við og afhjúpa shka anda, hefur Guð í náð og visdómi sínum gefið sófnuði sínum gáfuna —Greining anda. í kristna söfn- uðinum í Efesus var þessi náðargáfa starfandi, (Op. 2: 2.) Ljreining anda, er hluti af alvitund Guðs sjálfs, gefin af Heilögum Anda til andlegra manna og kvenna til að gera slíkum kleyft að þekkja og greina á milli hinna góðu og v°ndu anda, til að halda söfnuðunum hreinum og klár- um. 0 Lungutalsgáfan. Það fyrsta, sem við tökum eftir varðandi tungutalsgáf- una er. að það sem talað er, er raunverulegt tungumál. (Post. 2: II.) ,,Við heyrum þá tala á vorum tungum um stórmerki Guðs“. Tungutalið ersama eðlis í dag, eins ogá Hvítasunnudaginn í Jerúslem. Það er fjöldi af dæmum um. að fólk. sem meðtekur skírn í Heilögum Anda, talar tungum á skiljanlegum tungumálum. sem það þó sjálft kann ekki orð í. Þetta er til tákns og vitnisburðar fyrir ófrelsað fólk, og margir hafa frelsast fyrir þann boðskap. sem Guð á þennan hátt hefur sent þeim. Tungutalið er einnig til persónulegrar uppbyggingar. (1. Kor. 14: 2.) Hversu oft höfum við ekki reynl það, að meðan við tölum tungum frammi fyrir Guði einum, í innilegu samfélagi við Hann, að við skyndilega fáum innri uppljómun, sem af himnesku Ijósi. í hverju við reynum kærleika, kraft, vísdóm og sjáum rikdómana. sem við eigum í Kristi. Mannleg orð eru of fátæk til að túlka til fulls þá blessun og dýrð, sem maður, í sinni innri veröld fær að reyna á slíkum stundum. Maður gleymir sjálfum sér í Guði, lyftisl upp í hið himneska. Andi vor talar við Guð, sem er andi. (Jóh. 4:24.) Slika tilbiðjendur þráir Guð. Þannig getur bæn i Heilögum Anda framkvæmt meira en bæn með skilningi einum saman. Guðs fólk hefur ekki ráð á því að vera án þeirrar blessunar, sem Guð hefur fyrirbúið þvi í sambandi við tungutalsgáfuna. Heilagur Andi getur haldið hámessu í helgidómi hjartans. Páll talar um I 1. Korintubr. 14: 26 33. hvernig tungutalsgáfan á að notast í söfnuði Guðs. Því þarf hver sá, sem á þessa gjöf, að vera algáður, vakandi, og nota hana Guði til dýrðar og söfnuði Hans til uppbyggingar. áminningarog huggunar. Náðargjöfin útlegging tungna. Biblían segir, hvetjandi: „Biðji þvi sá, sem tungu lalar. um að geta útlagt." (I Kor. 14: 13.) svo söfnuðurinn hljóti uppbyggingu og blessun. Þessar tvær náðargáfur, að tala tungum og útleggja tungur. eru sem systur, svo náskyldar eru þær að eðli til. þegar um er að ræða notkun gjafar- innar. Við útiegging tungna. er mjög þýðingarmikið at- riði. að vera vakandi í anda sínum. svo maður geti greint Guðs rödd frá öðrum röddum. Útleggingu tungna má stundum líkja við móttökutæki, og þá gildir að hafa tækið innstillt á rétta bylgjulengd, svo maður fái ekki boðskap frá neinni annari sendistöð en Guðs sjálfs. F.kki sendistöð óskhyggju né eigin hugsana. Fyrirbyggjandi slíkra hluta er, að liafa hreinan anda og auðmjúkt hugarfar; algert kyrrlæti i anda sínum; sjálfsstjórn ogjafnvægi; þá getum við meðtekið og flutt það, sem Guðs Andi segir. Megi svo Guð við tíð endalokanna úthella Anda sínunt yfir sitt fólk og hertygja það með gjöfum og krafti Heilags Anda, svo lýður Drottins verði sigursæll fyrir hjálp Drollins. J.P. 23

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.