Afturelding - 01.04.1979, Blaðsíða 20
Jóhann Pálsson
GJAFIR HEILAGS ANDA
Páll postuli segir í 1. Korintubr. 12.2 varðandi gjafir
Andans; „Ég vil ekki, bræður minir, að þér séuð fáfróðir
um náðargáfur Heilags Anda“. Hér hreyfir Páll við þýð-
ingarmiklum sannleika. Maður getur verið heiðarlegur
kristinn maður, jafnvel skírður í Heilögum Anda, en samt
skort fullnægjandi skilning á gjöfum Andans. Hluti af
söfnuðinum í Korintuborg var fáfróður um hlutverk
náðargjafanna, og þeirra réttu notkun. En svo á ekki að
vera. Við þurfum að eiga andlegan skilning á gildi og
hlutverki gjafanna, og nota þær Guði til dýrðar og ríki
hans til eflingar og til gagns fyrir einstaklingana. Sem
eðlileg afleiðing af úthellingu Heilags Anda, koma gjafir
Andans í notkun, því að með skírn í Heilögum Anda
opnast möguleikarnir fyrir að fá gjafir Andans. Páll
fjallar um hinar níu mismunandi gjafir Andans í I. Kor-
intubr. 12. kap. og segir; „Öllu þessu kemur til leiðar eini
og sami Andinn, sem útbýtir hverjum einum útaf fyrir sig
eftir vild sinni.“ Guð er réttlátur og óhlutdrægur, fer ekki
í manngreinarálit. Ef við förum í gegnum Safnaðarsög-
una nokkur hundruð ára tímabil, finnum við,að þar sem
Andi Drottins fékk að starfa óhindrað, voru náðargjafir
Hans starfandi. Gjafir Andans eru mjög mikils virði. Páll
leggur mikla áherslu á verðmæti þeirra og nauðsyn.
Gjafir Andans eru sönnun þess, að Guð sjálfur ber traust
til síns fólks, að Hann skuli trúa því fyrir slfkum helgum
hlutum. Gjafirnar skulu notast til þess, sem gagnlegt er,
til uppbyggingar söfnuðinum, líkama Krists. Hvatningin
er; „Sækist eftir náðargáfunum". I .Korbr. 14. kap.
Að mæla af speki — vísdómi
Þessi náðargjöf miðlar sönnum vísdómi Guðs í hjörtu
vor, fyrir áhrif Andans.
Dæmi frá G. T. 2. Móseb. 31. 3-5. Um Bezalel Uríson
segir Drottinn; „Ég hefi fyllt hann Guðs Anda, bæði
vísdómi, skilningi, kunnáttu og hverskonar hagleik, til
þess að upphugsa listaverk, og smíða úr gulli, silfri og eiri,
og skera steina til greypingar og til tréskurðar, til þess að
vinna að hverskonar srníði." Þessi biblíuvers sýna okkur,
að sú speki sem Bezalel átti og gjörði hann hæfan að
framkvæma ákveðin verk varðandi fullkomunn Tjald-
búðarinnar, var ekki meðfæddur hæfileiki, eða lærður af
bókum eða margra ára þjálfun. Heldur fékk Bezalel vís-
dóminn með fyllingu Guðs Anda. Sama finnum við í
sambandi við Stefán píslarvott, sem greint er frá í Post. 6;
5. og 10. vers. Sem afleiðing af fyllingu Heilags Anda,
fyllist Stefán af vísdómi og speki. Sú speki sem Heilagur
Andi miðlar, er andlegs eðlis, og má ekki blanda saman
við mannlega visku, sem hægt er að afla sér í skóla lífsins,
með námi af ýmsu tagi. Biblían segir; „Þessi speki er ekki
af speki þessa heims." „Ótti Drottins er upphaf hinnar
sönnu visku“. Hin guðlega speki er í fyrsta lagi, „hrein.
því næst friðsöm, ljúfleg, sannsýn full miskunnar og
góðra ávaxta, óhlutlæg, hræsnislaus". Þessi Guðlega
speki er á miklu hærra sviði en hin mannlega, jarðneska,
náttúrulega speki. Náðargjöf spekinnar hefur miklu
hlutverki að gegna í hinu andlega starfi. „Hinn hyggni
vinnur sálir,“ segir Biblían.
„Þegar við athugum sögu manna og kvenna, sem hafa
verið framgangsríkir sálnaveiðarar, finnum við, að slíkir
menn og og konur hafa átt dásamlega visku og speki. Þau
notuðu réttu orðin á réttri stundu og á réttan hátt, sem
verkuðu leysandi, læknandi á viðkomandi persónur.
Sjáum hið dásamlega samtal Jesú við samversku konuna í
Jóhannes 4; 3- 29. Jesús mætir henni með kærleika og
visku, því tókst honum að vinna hana fyrir Guðsríkið.
Hér var hinn Guðlegi vísdómur að verki. Samverska
konan frelsaðist og bar djarflega vitni um Frelsara sinn,
um Hann, sem er ljós heimsins og Frelsari allra manna.
Náðargjöf spekinnar hefur miklu hlutverki að gegna,
þegar um er að ræða að koma þeim til hjálpar, sem lent
hafa í andlegum erfiðleikum og geta ómögulega hjálpað
sér sjálfir, þeim sem finnst þeir yfirgefnir af Guði og
mönnum. Hér þarf til vísdóm Andans. „Andi Guðs
rannsakar allt, jafnvel djúp Guðs“.
Gjöfin, að mæla af þekkingu.
Þessar tvær gjafir Andans, speki og þekking eru mjög
náskyldar. Þó er viss mismunur, sjáanlegur. Gáfan að tala
af þekkingu gerir þann, sem hana á, hæfan til þess að
fræða aðra um veg Guðs til hjálpræðis, að veita fólkinu
þekkingu á hjálpræði Guðs, með fyrirgefningu synda
þeirra. Fagnaðarerindi Guðs er heimska þeim, sem glat-
ast, en kraftur Guðs til hjálpræðis þeim sem trúa, Róm I.
16. Þegar Pétur var spurður af frelsisleitandi fólki, hvað
eigum við að gjöra? Kunngjörði hann þeim veg Guðs til
hjálpræðis, með þessum orðum; „Gjörið iðrun, látið
20