Afturelding - 01.04.1979, Blaðsíða 24

Afturelding - 01.04.1979, Blaðsíða 24
Gestur Sigurbjörnsson: Skím Heilags Anda Ég ætla að segja frá í stuttu máli hvernig ég öðlaðist skírn heilags anda í lífi mínu, og hvernig það varð til að gjörbreyta lífi mínu. Enginn kristinn maður getur verið án þessarar reynslu, hún er lífsnauðsynleg og Guð vill að hver einasti maður sem er kristinn öðlist fylling í þessari blessun. ..Þér skuluð vera kyrrir í borginni þar lil þér íklæðist krafti frá hæðum." Og það er regin misskilningur og þckkingarleysi á Ritningunni að segja að þetta hafi einungis gilt fyrir postulana, en við Hvítasunnumenn neitum því og látum Ritninguna svara þessu: Jóh. 7. 37—40: „En síðasta daginn, hátíðardaginn mikla, stóð Jesús þar og kallaði og sagði: „Ef nokkurn þyrstir. þá komi hann til mín ogdrekki, sá sem trúir á mig, úr hans kviði munu, eins og Ritn- ingin hefir sagt. renna lækir lifandi vatns.“ En þetta sagði hann um andann. er þeir mundu fá, er gjörðust trúaðir á hann. því að enn þá var andinn ekki gefinn. af því að Jesús var ekki enn þá dýr- legur orðinn." Og ennfremur segir Pétur, í fyrstu Hvítasunnuprédik- un sinni: Post. 2. 38—40: „Gjörið iðrun og sérhver yðar láti skírast í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar synda yðar, og þér munuð öðlast gjöf heilags anda, því að yður er ætlað fyrirheitið og börnum yðar og öllum þeim, sem í fjarlægð eru — öllum þeim sem Drottinn Guð vor kallar til sín.“ Hér tökum við allan vafa og tvímæli af. En nú vil ég koma inn á hlut sem margir misskilja. Það er að skírn heilags anda og endurfæðingin eru tvennskonar reynsla, og ekki ein og sama reynslan og því megum við ekki rugla saman. Jesús var fæddur af Heilögum Anda en eftir skírn Jóhannesar fylltist hann af Heilögum Anda. Lærisveinar hans voru endurfæddir, en á Hvítasunnu- dag öðluðust þeir nýja reynslu. Þeir skírðust i Heilöguni Anda. Ennfremur lesum við Postulasöguna 19. 1—7. Þegar Páll kemur til Efesus hittir hann þar fyrir nokkra lærisveina og spurði þá hvort þeir hefðu fengið heilagan anda er þeir tóku trú. „En þeir sögðu: Nei vér höfum eigi svo mikið sent heyrt að Heilagur Andi sé til. Og hann sagði: Upp á hvað eruð þér skírðir? En þeir sögðu: Upp á skírn Jóhannesar. En Páll sagði: Jóhannes skírði iðrun- arskírn. er hann sagði lýðnum að trúa á þann, sem eftir sig kæmi, það er að segja á Jesúm. Er þeir höfðu heyrt það, þá létu þeir skírast til nafns Drottins Jesú. Og er Páll hafði lagt hendur yfir þá, kom Heilagur Andi yfir þá, og þeir töluðu tungum og spáðu. Og alls voru þeir sem næst tólf manns." Margir hafa sagt sem ég hef vitað um: Á ég ekki hei- lagan anda? Jú vissulega eiga hann allir sem trúa á Jesúm og eru endurfæddir af Heilögum Anda. En þeir hafa ekki skilið að eins og frelsið er gjöf svo er Heilagur Andi gjöf. Eins og Pétur segir: gjörið iðrun og sérhver yðar láti skírast í nafni Jesú Krists til fyrirgefningarsynda yðar og þér munuð öðlast gjöf heilags anda. Þessu verð- um við að taka á móti í trú. Lærisveinarnir sem Páll mætti voru trúaðir, en höfðu ekki öðlast skírn Heilags Anda, og þá ætti þetta að liggja ljóst fyrir að endurfæðingin og skírn Heilags Anda, er ekki það sama. Það er tvenns konar reynsla. Það stendur í norskum málshætti að kærl barn á ntörg nöfn. Það sama er að segja um þessa dásamlegu reynslu. Skírn Heilags Anda í Jóh. 1. 33 kallast skírn hcilags anda; Lúkas 24. 49 Fyrirheit föðurins; Postulasögunni 2. 39 Gjöf Heilags Anda; Post. 19. 2 Heilagur andi; Post. 2. Fylling andans. Allt er þetta ein og sama reynslan með mismunandi nöfnum. En að lokum ætla ég að segja frá minni persónulegu reynslu, hvernig ég skírðist í Heilögum Anda. Það eru rúm fjögur ár síðan ég frelsaðist. Aðdragandinn að því að ég frelsaðist var að bróðir minn tók afstöðu fyrst. Ég sá það var orðin breyting í lífi hans og velti fyrir mér hvað hefði valdið þessari breytingu. Hér hlaut kraftaverk að hafa gerst. Maður, sem var orðinn forfallinn eiturlyfja- neytandi og afskrifaður af sérfræðingum var orðinn 24

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.