Afturelding - 01.04.1979, Blaðsíða 12

Afturelding - 01.04.1979, Blaðsíða 12
Spila á RÍtar og sög ... F.v.: Jónas Jakohsson, Kristín Jóna Þor- stcinsdóttir, Pálina Pálsdóttir, Auður Guðjónsdóttir og Eric Ericson. (>ömul mynd af Betel í Vestmannaeyjum. Frá sumarmóti á Sauðárkróki, útisamkoma. í Vestmannaeyjum, stóð í broddi fyrir kaupunum og fylgdu þau fast á eftir Kyvik, Kristín Sæmunds og Kon- ráð Þorsteinsson. Kristín Sæmunds fórnaði sér mjög fyrir starfið á ísafirði og studdi með ráðum og dáðum, þá bræður er leiddu starfið. Eftir að Kyvik fór, þá kom þangað Erik Martinsson, með Gerdu konu sinni. Þau hjón urðu síðar brautryðjendur starfs Hvítasunnumanna í Grænlandi, ásamt Rune Asblom, sem þá hafði starfað hérlendis um árabil. Ekki er svo hægt að skrifa um starfið á ísafirði, að Sigfúsar B. Valdimarssonar skuli ekki getið og hins merka sjómannastarfs er hann hefir árum saman rekið þar. Hefir hann stundað störf sín í gegnum árin í frítímuni sínum og um helgar. Heimsótt sjúklinga í sjúkrahús og skip. Eitt sinn er Sigfús var við lestun á frystum fiski til Rússlands, þá gekk hann frá rússnesku Guðs Orði og setti milli fiskpakkanna. Við uppskipun kom Orðið í Ijós og olli það miklu fjaðrafoki meðal Rússanna. Uppskipun var hætt, skipið varð að bíða og mikið vesen. Kom þá í ljós eins og oft áður að vantrúin er ekki sterkari en það, að hún þolir ekki Guðs Orðið. Nú síðustu ár hefir Gunnar Lindblom, búið í Salem með fjölskyldu sinni og staðið fyrir starfinu. Vestfirðing- um hefir bæst góður starfskraftur í Indriða A. Kristjáns- syni, er numið hefir Biblíufræði á Biblíuskóla í Kanada meira en þrjú ár. Arið 1952-1958 stóð Eric Ericsson fyrir byggingu Fíladelfíu í Keflavík. Hafði hann fengið opinberun um að hefjast handa. Mátti ekki tæpara standa, með for- göngu Ericsons, því hann andaðist í janúar árið 1959, en þá var húsið fullbúið og Ericson gat sjálfur vígt það. Ericson kvaddi sér sjálfur tvo unga bræður til samstarfs, þá Harald Guðjónsson og Kristján Reykdal. Haraldursá um forstöðu starfsins í mörg ár og stóðu þeir saman Kristján og hann. Enda kom ávöxturinn í ljós. Við andlát fyrri konu Haraldar, Pálínu Pálsdóttur þá fluttist hann nokkru síðar til Reykjavíkur og gerðist starfsmaður í Sparisjóðnum Pundinu. Peter og Kristín Inchcombe gengu nú inn í starfið í Keflavík og voru þar um tveggja ára bil. Fluttu þau svo í Barnaheimilið Kornmúla og voru þar um tíma. Þá flutti Samúel Ingimarsson til Keflavíkur og er þar, þegar þetta er skrifað. Fyrir forgöngu Samúels, þá hefir samkomusalnum verið breytt mjög og einangrun aukin að mun. Salur er kominn fyrir ofan aðalsalinn, svonefnd kaffistofa, að erlendri fyrirmynd. Akur er mikill um öll Suðurnes og möguleikar miklir til starfa. Áfram færast tjaldhælarnir út. Við endurteknar ferðir um Austurland opnaði Drottinn hjörtu fólks á Vopna- firði. Meðal þeirra er tóku afstöðu með málefni Drottins var Ingibjörg Pálsdóttir ljósmóðir í Ási. Einnig komu synir hennar með, þeir Sveinn, Aðalsteinn og Þórarinn og svo faðir þeirra Sigurður Sveinsson. Öll þessi fjölskylda, vinir í trúnnj á Vopnafirði og Sigurmundur Einarsson trúboði, hófust nú handa um veglega húsbyggingu, teiknaða af Guðna Markússyni og bræðrunum í Kirkju- lækjarkoti. Húsið stendur á einum fegursta bletti í túnum 12

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.