Afturelding - 01.04.1979, Page 4

Afturelding - 01.04.1979, Page 4
María Pétursdóltir Mig langar að segja þér hve gott er að treysta Jesú fyrir lífi sínu og öllum málum. Fyrir sex árum síðan ákvað ég að gefa Jesú líf mitt. Ég segi ekki að lífið hafi verið dans á rósum upp frá því, en það er allt öðruvísi að takast á við vandamálin og ráða fram úr því, sem mætir manni, ef maður reiknar með Jesú i lífinu. Ég vildi ekki hafa farið í gegnum þessi ár án Hans. Ég hef svo oft fengið bænasvör þegar eitthvað hefur ábjátað. Ég hef getað falið börnin mín í Drottins hönd og gefið þeim Guðsorð í vegarnesti. Pabbi og mamma kenndu okkur systkinunum um Jesú og báðu með okkur og fyrir okkur, og það var það besta sem þau gátu gefið okkur. En ég varð sjálf að velja eða hafna Jesú. Mig langar að segja þér frá bænasvari, sem ég fékk í vetur. Drengurinn minn, sem þá var sjö mánaða hafði verið svo veikur. Það byrjaði með kvefi, en svo var hitinn kominn upp í 41. stig og ég hringdi í lækni sem sagðist koma fljótlega. svo biðum við, dreng- urinn var í hálfgerðu móki og maðurinn minn hélt á honum. Allt í einu kallar hann á mig og ég flýtti mér inn til þeirra. Þá sá ég að drengurinn var allur blánaður upp og var alveg eins og dáinn. Ég tók utan um hann og við báðum Jesú að lækna hann. Eftir augnablik dró drengurinn djúpt andann og rankaði við sér. Ég er alveg viss um að þarna var Guð að verki og enginn annar. Að endingu vil ég segja: Ég veit ekkert betra þér til handa, hver sem þú ert, enn að þú hleypir Jesú Kristi inn í líf þitt. „Treystið Drottni æ og ætíð, því að Drottinn, Drottinn er eilíft bjarg“. Jesaja 26;4 María Pétursdóttir. Jóna Baldursdóttir Ég get aldrei með orðum lýst hve þakklát Guði ég er að hafa fengið að alast upp í trú og finna hve mikil gjöf það er að eiga athvarf hjá honum. Að geta treyst honum, því þó við bregðumst, þá bregst hann ekki okkur mönnunum. „Þeir sem treysta Drottni eru sem Zíon-fjall, er eigi bifast, er stendur að eilífu. Sálm. 125.1“ Oft í lífinu hafði mig langað til að fylgja frelsara mínum, en ég gafst upp við þá hugsun, einfaldlega vegna þess að ég hélt ég þyrfti að vera svo fullkomin til að verða hans lærisveinn, svo tímdi ég aldrei að gefa mig alla. En svo vaknaði ég við kaldan raun- veruleikann, hvað lífið var annars tómt og snautt án Hans. En þá kom efinn, er Guð til, er Biblian sönn? Svo eins og rann upp fyrir mér, það leikur enginn vafi á því að djöfullinn er til, alveg örugglega, sem reynir að stela, slátra og eyða, og þá efaðist ég ekki um að Jesús væri til, enda hef ég fengið að reyna gæsku Guðs og smakka á gjöfum hans og mig langar ekki til að skipta. Sumir halda að lífið með Guði sé eins og að láta jarða sig lifandi, en það er alröng hugmynd. Lífið með Guði er dásamlegt og öruggt. Margir eru mjög leitandi í dag, enda kannski ekki að ástæðulausu, en ég bendi þér á Jesú, reyndu Hann í trú, og þú verður ekki fyrir vonbrigðum. Guð blessi þig sem lest þessar línur. Jóna K. Baldursdóttir. Munib aö tilkynna búsetuskipti Afturelding sími 91-20735 4

x

Afturelding

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.