Afturelding - 01.04.1979, Side 5
Drotdnn er hlutskipti mitt,
ég hefi ákveðið að varðveita orðþín.
Ég hefi leitað hylli þinnar af öllu hjarta,
ver mér náðugur samkvœmt fyrirheiti þínu.
Ég hefi athugað vegu mína
og snúið fótum mínum að reglum þínum.
Sálm. 119: 57—59
Það er mikil náð að finna mjóa veginn, því að fáir
eru þeir sem finna hann (Matt. 7:13-14). Biblían
segir okkur frá tveimur vegum, annar er breiður og
auðfarinn, en hann liggur til glötunarinnar, og
nargir fara þann veg. Því að þröngt er hliðið og
tnjór vegurinn er liggur til lífsins. Það að ganga inn
nrn þrönga hliðið og ganga síðan mjóa veginn, þýðir
að þú ferð af vegi þeim er flestir ganga og verður
öðruvísi. Þar brestur marga kjarkurinn. Að finna
þetta hlið og ganga inn um það, er að finna Jesúm
°g játa syndir þínar og fá fyrirgefningu, og byrja
s*ðan nýtt líf, gönguna eftir mjóa veginum. Það er
svo stórkostlegt við mjóa veginn að hann ferðu
aldrei einn, því Jesús og englar hans eru alltaf með
þér. En á breiða veginum ertu aleinn, þótt þú sért
utnkringdur fólki.
Það var í september 1973 sem ég tók á móti Jesú
^risti sem frelsara mínum, ég endurfæddist eins og
talað er um í Jóhannesarguðspjalli 3. kaflá. Líf mitt
breyttist, allt í kringum mig virtist breytast, hjarta
milt fylltist friði og gleði, einhverju sönnu og tæru
Sem ég hafði aldrei upplifað áður. Og það er eitt-
^vað sem varir.
Það varð mér ljúft og gleðilegt að fá að ganga
JTIJóa veginn með Jesú. Og nú er ég lít til baka um
eið og ég skrifa þessar línur, þá er mér hugsað til
Pess, hvað Jesús verður mér alltaf kærari og kærari
eftir því sem tíminn líður. Þvílík forréttindi að fá að
Pj°na honum og segja öðrum frá kærleika hans.
Pegar Jesús bað fyrir hinum trúuðu áður en hann
Var krossfestur, þá sagði hann. „Helga þú þá með
sannleikanum, þitt orð er sannleikur.“ (Jóh. 17:17),
sv° stendur „sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa",
Þú skalt elska óvin þinn og biðja fyrir þeim sem
gerir þér rangt til í hverri mynd, sem það kann að
birtast.
Þegar þú biður fyrir þeim, sem hefur gert þér
eitthvað illt, þá berðu hann á bænarörmum fram .
fyrir hásæti Guðs. Guð er kærleikur. Kærleikur
þessi er fyrst og fremst einhliða. Guð er fullkominn.
Þess vegna birtist hinn fullkomni einhliða kærleikur
í því að Guð elskar alla menn jafnt, réttláta sem
rangláta. Kristur sagði: „Verið fullkomnir eins og
yðar himneski faðir er fullkominn“. (Matt. 5;48).
En í þessu birtist hinn fullkomni einhliða kærleikur,
að við elskum ekki bara þá sem okkur elska. Það
væri aðeins gagnkvæmur kærleikur. Heldur elskum
við þá sem ekki elska okkur. Manninum er ekki
eðlilegt að elska aðra en þá sem hann elska. Við
gerum okkur grein fyrir þessum veikleika okkar að
bera litla elsku til þeirra sem gera eitthvað á hluta
okkar. í bæninni þá sækjum við kraft frá Guði til að
beygja vilja okkar til hlýðni við kærleikann og fá
þannig sigur yfir hvers kyns gremju, beiskju, illum
hugsunum eða jafnvel hatri. Því verður j^að fyrir
kraft andans, sem við öðlumst vernd fyrir því að
hugsa, segja eða framkvæma eitthvað illt. f staðinn
öðlumst við elsku. En elskan er band algjörleikans.
Henni fylgir svo hinn djúpi, takmarkalausi friður
Guðs er varðveitir hjörtu okkar og hugsanir í sam-
félaginu við Krist.
Sigurður Örn Leósson.
(Jóh. 8:32). Það ætti að opna fyrir huga okkar,
hversu þýðingarmikið það er að lesa Biblíuna -
Orðið.
Guð blessi þig.
A sta Júlíusdóttir
Keflavík
5