Afturelding - 01.04.1979, Síða 7
Fyrsti Biblíuskóli Hvítasunnumanna, haldinn í Vestmannaeyjum 1935. Fremri röð f.v.: Milda Jacobsen, Kristín
Jóna Þorsteinsdóttir, Signe Ericson, Þórhildur Jóhanncsdóttir, Guðbjörg Guðjónsdóttir. Aftari röð f.v.:
Sæmundur Sigfússon, Sigfús B. Valdimarsson, Sigmund Jacobsen, Erik Ásbö, Eric Ericson, Ásmundur Eiríks-
son, Óskar M. Gíslason, Jónas Jakobsson.
þægilegra að halda áfram um Færeyjar og til Noregs. En
Erik Asbö var köllun sinni trúr. Selflytja varð fólk í land,
Þyí stór skip komust þá ekki inn um hafnarmynnið. Þegar
Ásbö og fólk hans er komið á bryggjuna og það veit
ekkert hvernig leiðin Iá, eins og hjá Abraham forðum, Þá
vmdur sér að Asbö mjög virðulegur maður og segir við
hann á dönsku. „Jeg skulle tage i mot dem“. Þetta var
Gís|i J- Johnsen einn af oddamönnum Eyjanna og sá sem
^jest bar á. Bæði var maðurinn vel gerður af Guði, til
salar og líkama, svo rak hann eina stærstu verslun Eyj-
anna Edinborg, rak fiskimjölsverksmiðju og umfangs-
aatkla útgerð og fiskverkun. Hús hans voru kölluð Eilífð.
ar að auki var hann breskur konsúll. Gísli bjó ákaflega
vel °g st6ð heimili hans að Breiðabliki. Þangað var nú
arið og biðu ilmandi réttir eftir húsbónda og gestum
ans. Asbö skildi hvorki upp né niður, en var viss um
andleiðslu Drottins. Vegna hans var hann nú á Heima-
ey- Við nánara samtal kom í Ijós að Gísli hafði tekið
jfiannafeil. Honum hafði verið falið að taka á móti
tuglaveiðara, sem ætlaði að merkja lunda. í stað þess, þá
t()k hann á móli sálnaveiðara, sem merkti ntenn fyrir
uðsríki. Gísli leit á þetta sem smámuni, þvi hann var
höfð' • 1
hafið
0>ngi mikill. Drottins er allt og getur hann stundum
UPP þjona s>na í mannlegum virðingum. Rétt eins
°8 Hann bjó syni sínuni legstað með ríkum. Þessi
m>skilningur Gísla kom Asbö ntjög til góða. Gísli útveg-
1 honum húspláss og veitti honunt ómetanlega fyrir-
greiðslu á margvíslegan hátt.
Asbö hóf samkomuhöld þegar fyrsta kvöldið, sem
nn var í Eyjum. Það var þurrkur þennan dag, sem
þýddi að fjöldi fólks var við störf víða unt eyjuna, bæði
við hey og saltfiskþurrkun. Stærstu þerrireitirnir stóðu
vestur og suður af Landakirkju. „Er nú þetta hljóð
heyrðist“, sent forðum á Hvítasunnudag, þá streymdi
fólkið saman. Það var sungið, lesið, beðið. Svo skeði það.
allt í einu í miðri samkomunni. Andi Guðs kemur yfir
fólkið. Fólkið verður altekið mikilli alvöru, sumir gráta.
Heilagur Andi, sem sendur er í þennan heim, til að
sannfæra um synd, réttlæti og dóm er þarna á ferð og það
meira en nokkru sinni fyrr í lífi Asbös. Það var eins og öll
hlið Himinsins væru opin, svo kröftug var nærvera
Drottins. Þarna — við flöt Landakirkju og Barnaskólans I
Eyjum og dagurinn mun hafa verið 4. júlí 1921 — hefst
hin íslenska Hvitasunnuhreyfing. Það kviknar vakning.
Um 80 manns grípast af vakningunni. Samkomuhús eru
síðar legið og margir komu og gripust af orðinu.
Því miður þoldi Erik Asbö ekki sjávarloftið I Eyjum.
Hann fer út til heimahaga og er I burtu um nokkurt bil.
Notaði hann tímann til að safna í kirkjubyggingu, sem
send var til íslands í júlímánuði 1925. Eða rétt 925 árunt
eftir að Hjalti Skeggjason og Gissur Hvíti komu með við í
kirkjubyggingu I Vestmannaeyjum gefna af Ólafi kon-
ungi Tryggvasyni. Um þetta greinir Landnáma mjög vel,
hvernig kirkjan var byggð á Hörgeyri. Komu þeir til lands
í sama mánuði og Kristni var lögtekin á íslandi í júní-
mánuði árið 1000.
Asbö kont til íslands á undan kirkjuskipinu, sent lest-
aði farm sinn í Gautaborg og Ivar Claesson forstöðu-
maður Smyrnasafnaðarins sá um. Með skipinu komu
7