Afturelding - 01.04.1979, Blaðsíða 14
RaiinvcÍK M.
Níelsdóttir
Sifjríðiir
Hendriksdóttir
Hann yfirgefur ekki
Heilagur Andi
í Jóhannesarguðspjalli 14; 16- 18 stendur þannig
skrifað:
..Og ég rnun biðja föðurinn og hann mun gefa
yður annan huggara, til þess að hann sé hjá yður
eilíflega, anda sannleikans, hann sem heimurinn
getur ekki tekið á móti, af því að hann sér hann ekki
og þekkir hann ekki heldur. þér þekkið hann af þvi
hann dvelur hjá yður og er í yður.“
Og í 25. og 26. versi, sama kafla: „Þetta hefi ég
talað við yður, meðan ég var hjá yður, en huggar-
inn. andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu
nafni. hann mun kenna yður allt, og minna yður á
allt sem ég hef sagt yður.“
Eitt sinn, er mér fannst allur heimur minn hrun-
inn, gaf Drottinn mér þessi orð. Ég skildi ekki alveg
í fyrslu livað Drottinn meinti með þessu en síðar, er
ég hugleiddi þessi orð rækilega, skildi ég vilja Guðs.
Nokkru seinna var ég skírð í Andanum.
Það yrði of langt mál að telja allt það upp, sem ég
hef upplifað með Drottni síðan. En eitt er víst að
það er sama hversu svart útlitið hefur verið , alltaf
hefur huggarinn sent mér Ijós og lýst upp tilveruna.
Það er nauðsynlegt fyrir okkur sem störfum í
Guðs ríki að hafa Andann við hlið okkar. Nú á
þessum síðustu tímum er, og hefur reyndar alltaf
verið, svo margt sem stríðir á móti okkur og við
megnum ekki að standa gegn því ein. En Andinn er
öllu yfirsterkari og hann yfirgefur okkur ekki.
Rannveig María Níelsdóttir.
Elvað er Heilagur Andi?
Heilagur Andi er þriðja persóna guðdóms-
ins. Ég varð þeirrar gæfu og náðar aðnjótandi
fyrir tuttugu og átta árum síðan að skírast með 1
Heilögum Anda og tala öðrum tungum eins og
stendur í Postulasögunni 2:4. Hann gaf mér
hluta af himni sínum, hann er mér berandi
kraftur í gegnum lífið. í orði Guðs, Biblíunni,
standa þessi orð: „Þér munuð öðlast kraft er
Heilagur Andi kemur yfir yður.“ (Postulasag-
an 1:8.)
Þegar Jesús var hér á jörðinni sagði hann við
lærisveina sína að hann færi burt og þegar
hann væri farinn burt, mundi hann senda
huggarann, sannleiksandann, sem er Heilagur
Andi, til þeirra. Og hann mundi ieiða þá í allan
sannleika, hugsið um þessi orð, — leiða í allan
sannleika. Ef Heilagur Andi býr í okkur, þá
gerum við það sem rétt er, af því hann leiðir
okkur og upplýsir. Ég er aðeins kona, frelsuð af
náð og skírð með Heilögum Anda og ég þrái
að lofa Drottin rninn í anda og sannleika. Ef ég
geri það ekki eða get það ekki, þá fer mér eins
og Jeremía spámaður segir: „Þá var sem eldur
Framhald á bls. 31
14