Afturelding - 01.04.1979, Qupperneq 18
Samúel Ingimarsson:
Avöxtur
Aivdaus
Eitt þýðingarmesta atriðið í lífi hins kristna
manns, er ávöxtur andans. Ávöxtur andans kemur
bezt fram í daglegu lífi. Mitt í erfiðleikum, sam-
skiptum okkar við annað fólk, undir miklum þrýst-
ingi o.fl.
Trúuðum eru gefnar mismunandi gjafir (I.Kor.
12:4—11). Þú getur átt gjöf, sem ég á ekki og svo
öfugt. Þegar við tölum um ávöxt andans er sam-
kvæmt Bíblíunni grundvallarmunur á þessu
tvennu. Annars vegar gjöfum andans og hins vegar
ávexti andans. Ólíkt gjöfum andans er ávexti and-
ans ekki skipt á milli hinna trúuðu. Guð reiknar
með ávexti andans í lífi sérhvers okkar.
Það er athyglisvert að Biblían talar um ávöxt
andans, en ekki ávexti andans (Gal. 5:22). Heilagur
andi er upphaf ávaxtar í lífi okkar. Á sama hátt og
við tölum um Heilagan anda, sem einn anda, sem
þó er mörgum gefinn, á sama hátt er einn ávöxtur
andans mörgum gefinn. Sá sem hefur ávöxt andans
í lífi sínu hefur allt sem talað er um í Gal. 5:22 :
Kærleika, gleði, frið, langlyndi, gæzku, góðvild,
trúmennsku, hógværð og bindindi. Við getum ekki
talað um að bera ávöxt að hálfu leyti. Annað hvort
berum við ávöxt í lífi okkar eða ekki.
Hvernig getur ávöxturinn vaxið
Hvernig fer Heilagur andi að því að framleiða
ávöxt í lífi okkar. Það eru tveir ritningastaðir sem
hjálpa í því sambandi:
I. Sálmur 1. Þar er guðlega manninum líkt við tré,
sem gróðursett er hjá vatnslækjum: „ . . . heldur
hefir yndi af lögmáli Drottins og hugleiðir lög-
mál hans dag og nótt. Hann er sem tré, gróður-
sett hjá vatnslækjum, er ber ávöxt sinn á réttum
tíma, og blöð þess visna ekki, og allt er hann
gjörir lánast honum“. Sálm. 1:2—3
Hér er talað um að sá sem ber ávöxt er sá, sem
ekki aðeins les Guðs orð heldur hugleiðir það.
Það er afskaplega þýðingarmikið að við hug-
leiðum það sem við lesum, til þess að orð Guðs
festi djúpar rætur í lífi okkar. Davíð konungur
segir í Sálm. 119:11, „Ég geymi orð þín í hjarta
mínu, til þess að ég skuli eigi syndga gegn þér.“
Orð Guðs er lifandi og kröftugt og í því er varð-
veitandi kraftur. Og þegar við lesum það og
hugleiðum, þá sannfærir Heilagur andi okkur
um það sem þarf leiðréttingar við í lífi okkar
(II.Tím.3:I6—17). Ef Guðs orð er ekki með
verður ekki um ávöxt eða andlegan vöxt að ræða
í okkar lífi.
II. Jóhn. 15. Þar talar Jesús um okkur sem greinar á
vínviðnum. „Verið í mér, þá verð ég líka í yður.
Eins og greinin getur ekki borið ávöxt af sjálfri
sér, nema þér sé uð í mér. Ég er vínviðurinn þér
eruð greinarnar, sá sem er í mér og ég í honum,
hann ber mikinn ávöxt, því að án mín getið þér
alls ekkert gjört (Jóh. 15:4—5).
Hér eru nokkur atriði sem við skulum taka vel
eftir: Við tökum fyrst eftir mjög skýru boði Drott-
ins: „Verið í mér“. Þegar við erum í Kristi er ekkert
sem getur komið þar á milli okkar og hans. En til
þess að svo megi verða dag fyrir dag, þ.e.a.s. á
mánudögum jafnt sem sunnudögum er allur sjálfs-
agi í sambandi við bænalíf, Biblíulestra og samfélag
trúaðra svo þýðingarmikill. „Án mín getið þér alls
ekkert“.
Jesús sagði: „Af ávöxtunum skulið þér þekkja
þá“. Ef við lesum og hugleiðum Guðs orð, og lifum
í Kristi, berum við ávöxt, sem varir við. Heimurinn
leitar fyrst og fremst eftir ávexti í lífi þínu. (I.Jóh.
3:18).
Öll tré sem bera mikinn og góðan ávöxt eru
vissulega falleg tré.
18