Afturelding - 01.04.1979, Qupperneq 19
Hallgrímur Guðmannsson:
Jesús
skírir í
Heilögum Arvda
I dag þegar mikið er rætt og ritað, um starf Heil-
ags Anda og einkum og sér í lagi, ef skírn í Heilög-
um Anda er höfð í huga, mætti ætla að sumum
finnist að Drottinn Jesús Kristur sé settur skör lægra
en Heilagur Andi og jafnvel þokað til hliðar í þess-
um umræðum. En sé Biblían sjálf, látin tala og lögð
úl grundvallar þessu mikilvæga umræðuefni, kem-
Ur allt annað á daginn.
Vart ætti að þurfa að taka fram, að það er ekki á
valdi eins eða neins, hvort heldur hann er biskup,
prestur, predikari eða trúboði, kirkju eða kristins
safnaðar hvaða nöfnum sem þau nefnast, að skíra
með Heilögum Anda og eldi. Nú hefur mikill fjöldi
endurfæddra kristinna manna, í hinum ýmsu
kirkjudeildum og trúfélögum víða um heim, og
þ-á.m. hérlendis, orðið aðnjótandi þeirrar miklu
^lessunar að skírast í Heilögum Anda og tala nýjum
tungum. Hér er auðvitað sjálfur Drottinn að verki,
en ekki menn.
Hann sem skírir í Heilögum Anda.
Strax, í byrjun Nýjatestamentisins kemur í ljós,
að það ersjálfur Jesús Kristursem skírir í Heilögum
Anda. Við lesum það sem Jóhannes skírari segir um
Krist, í Matteus 3; 11. ,,Ég skíri yður með vatni til
iðrunar, en sá er mér máttkari sem kemur á eftir
mér og er ég ekki verður að bera skó hans. Hann
niun skíra yður með Heilögum Anda og Eldi“. í
hinum guðspjöllunum þremur, er lögð á það sérstök
áherzla, að það sé Hann - Jesús Kristur - en ekki
Jóhannes skírari eða einhver annar væntanlegur
spámaður sem skíri í Heilögum Anda.
Markúsarguðspjall 1 ;8, segir:.En Hann mun
skíra yður með Heilögum Anda“. Lúkasarguðspjall
3; 16, segir; ,,Hann mun skíra yður með Heilögum
Anda og eldi“. Og Jóhannesarguðspjall 1;34, hefur
þetta að segja; „Hann er Sá sem skýrir með Heil-
ögum Anda“. Þessi vitnisburður Biblíunnar ætti að
nægja til að sýna, að það er sjálfur Frelsarinn Jesús
Kristur sem skírir í Heilögum Anda. Hann sem er
höfundur trúar okkar (Heb. 12;2) er Hinn eini
Frelsari, hinn mikli læknir, Heilags Anda Skírarinn
og hinn komandi konungur.
Samkvæmt eigin orðum Jesú getum við séð, að
hlutverk Heilags Anda er að upphefja og mikla
Jesúm Krist. „Hann, —þ.e.a.s. Heilagur Andi
mun vegsama mig, því af mínu mun hann taka og
kunngjöra yður.“ (Jóh. 16; 14). Og ennfremur í
Jóh. 15;26.“ . . . Sannleiksandinn - Heilagur Andi
sem útgengur frá föðurnum hann mun bera mér
vitni“. Öll þessi mikla blessun og auðæfi sem felast í
Heilags Anda skírninni, kemur frá og veitist af
Honum — Kristi sem allir fjársjóðir spekinnar og
þekkingarinnar eru fólgnir í. (Kól. 2;3.) Skírn í
Heilögum Anda og náðargjafir Andans í lífi hins
frelsaða manns, miða að því einu, að gera Jesúm
Krist stærri og dýrlegri í lífi hans. Að vera skírður
með Heilögum Anda og tala nýjum tungum, er
nokkuð sem enginn getur sjálfur státað af og notað
sem skrautfjöður. Þessi dýrmæta reynsla ávinnst
ekki fyrir okkar eigin góðverk og ágæti, heldur er
hún gjöf frá Guði, Guði einum að þakka.(I.Kor.
14; 18).
Þeir sem skírast í Heilögum Anda.
Við höfum nú séð út frá Biblíunni, að það er
Kristur sjálfur sem skírir í Heilögum Anda. Nú
skulum við aðgæta nánar, hverjir þeir eru sem Hann
vill skíra og skírir, í Heilögum Anda. Jafn skýrt og
Biblían kennir, að allir menn verði ekki sáluhólpnir,
Framhald á hls. 30
19