Afturelding - 01.04.1979, Blaðsíða 29
Gluggi með rauðköflóttum gardínum brosir við
mér í hvert sinn sem mér verður litið út.
Þessi gluggi tilheyrir fölgulu húsi beint á móti
stofuglugganum mínum. Varla var hægt að segja að
nrargt manna legði leið sína í þetta hús. Þó kom það
fyrir að einn og einn bankaði upp, snaraðist inn og
dvaldist lengi.
Bak við þessar gardínur bjó gömul ekkja í ríki
sínu. Hún var fámál við okkur hér í götunni, brosti
sjaldan en kinkaði þó kolli er við heilsuðum henni í
mjólkurbúðinni. Oft dvaidist ég við gluggann minn
°g horfði yfir til nágrana míns. Mig langaði lil að
kynnast henni.
Að lokum tók ég á mig rögg kvöld eitt upp úr átta
°g drap á dyrnar hennar. Erindið var einfalt, mig
l^ngaði til að gefa henni þetta blað Afturelding. Ég
Þauð gott kvöld. Ég gaf henni ekkert færi á að loka
hurðinni, fyrst ég á annað borð var næstum komin
'nn á gafl til hennar. Ég sagði henni hreinskilnings-
'ega að mig langaði til að gefa henni þetta blað og ég
bæði daglega fyrir henni. Að lokum bauð ég góða
uótt. Hún horfði rannsakandi á mig, — heyrðu
hinkraðu aðeins, viltu ekki koma rétt sem snöggvast
uin og fá þér heitan sopa?
Eldhúsið hennar var fátæklegt en hvert horn var
yfirfullt af værum yl. Hún lagði bolla á borðið
nsamt kökum og hellti bleksvörtu kaffi í bollann
rr‘inn. Ég bað stutta bæn. Konan laut höfði, þegar
^ún leit upp sá ég tár blika í augnakrókum hennar.
Aður en ég vissi af hafði þessi kona opnað hjarta sitt
í þessari bók, segir Sonia Edin-Gillberg frá æsku
sinni a drykkjumannsheimili. Hún lýsir þeim erfið-
leikum, sem börn drykkjumanna eiga við að etja.
Hvernig ofdrykkja lagði í rúst fallegt heimili ungra
hjóna og framtíðin var dimm.
Þá gerðist það undur að faðir Soniu frelsaðist
fyrir trú á Jesúm Krist og allt breyttist til hins betra.
Faðir Soniu, Erik Edin, er forstöðumaður L.P.
Stiftelsen í Svíþjóð, sem er hliðstæða við Samhjálp
hérlendis. í bókinni er lýst hvernig þessu stórkost-
lega hjálparstarfi var hleypt af stokkunum.
Einnig segir frá því hvernig Sonia komst sjálf til
trúar, giftingu hennar, lífi og starfi.
Bókin er 55 bls. í vasabroti.
Verð 1800/- kr. Útg. Samhjálp.
fyrir gestinum. Við eignuðumst dýrmæta stund
saman, ásamt honum sem þekkir okkur betur en við
gerum sjálf. Nærvera Drottins var greinileg. Áður
en við skildum báðum við stutta bæn og Faðirvorið.
Ég var ríkari er ég yfirgaf hús hennar, en þegar ég
kom. Drottinn hafði gefið mér nýjan vin og leitt mig
í veg sálar er þráði Hans frið.
hl.
Þessi frásögn getur hent okkur næstum daglega.
En hversdagsleikinn með Guði er oft mjög spenn-
andi.
29