Afturelding - 01.01.1983, Síða 12

Afturelding - 01.01.1983, Síða 12
Þeir Friðrik og Garðar setjast til borðs og ég er að stjana við matinn. Svo segi ég: Garðar minn, í þessu húsi hefur alltaf verið viðhöfð borðbæn og við breytum ekki þeim sið, þótt hér sé alþingismaður og stórlax. Þá svarar Garðar: Nú er ég enginn stórlax. Svo bað ég Drottin að blessa borðhaldið og gestina og fólk- ið, sem hafði tvístrast. Þeir tóku vel til matar síns. Eftir mat- inn standa þeir upp og Garðar segir við mig: „Óskar, mikið þakka ég þér nú vel fyrir hvernig þú tókst á móti mér. Því ég bjóst ekki við að fá uppörvun, — svona frá þér. Hingað kom ég algjörlega niðurbrotinn maður á líkama og sál. í byrjun marsmánaðar var ég aftur í Eyjum. Þá var orðið vart gassins í miðbænum og ekki mátti sofa þar á næturna. Menn óttuðust að gasið ryddist víðar. Mötuneyti var komið í Gagn- fræðaskólanum. Einu sinni var ég að koma þaðan úr mat og varð samferða Sighvati Bjarnasyni í Ási, skipstjóra og framkvæmda- stjóra Vinnslustöðvarinnar. Þeg- ar við göngum niður að Landa- kirkju segir Sighvatur við mig: „Óskar, það var mikið beðið nóttina 23. janúar. Það var ein stór bænasamkoma.“ Hann vissi það að ég hafði stundað bænasamkomurnar í gegnum árin. Það vita allir að fólkið fékk bænasvar, svarið var miskunn Guðs. Það hjálpaði að flotinn var í höfn og fólkið gat bara gengið beint um borð. Fyrst þegar ég varð gassins var, eða þess sem kallað var „móða“ þá var ég á gangi í Bárugötu og var einn. Það voru komnar traðir og hraukarnir miklir af gjallösku þarna sitt hvoru megin. Þá geng ég allt í einu inn í ský, ég sá það ekki, en ég varð sannarlega var við það og vissi undir eins hvað þetta var. Ég gat ekki náð and- anum og hugsun mín var bara að komast upp á gjallhaugana, sem ég og komst. Óg þegar ég var kominn þarna upp svolítið mæð- inn, ég gerði eins og ég gat, þá komst höfuðið upp úr skýinu í hreint loft. Þá var skýið svona um mjaðmir mér. Ég beygði mig niður hvað eftir annað og það var auðfundið að þetta var alvarlegt, ef þetta væri nógu mikið, þá var bara ekkert nema dauðinn. Þá fyrst skildi ég hvað fólst í „Móðuharðindi.“ Það voru skepnurnar, sem dóu í Móðu- harðindum og það voru jurtirnar, sem skepnurnar áttu að lifa af- Þetta dó allt saman og svo féll fólkið á eftir. Seint í mars varð mikil framrás hraunsins og mörg hús fóru undir. Þá sprakk „Flakkarinn1

x

Afturelding

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.