Afturelding - 01.01.1983, Blaðsíða 16

Afturelding - 01.01.1983, Blaðsíða 16
Vindafar og eldgos: Máttarverkið mikla í Eyjum 1973 „Hann skipar bœði vindum og vatni og hvorttveggja hlýðir honum“(Lúkas 8:25). Ofangreind orð mæltu læri- sveinar Jesú, furðu lostnir, þegar þeir sáu og heyrðu til Drottins okkar, skipa vindi að lægja og vatni að stillast - og hvorttveggja gekk samstundis eftir. Þessa frá- sögu kannast vel flestir við og hefur hún fylgt kynslóðunum í hartnær 1950 ár. Vestmannaeyingar fengu að reyna það heim 22. janúar og að- faranótt þess 23. og allt til gos- loka, 2. júlí 1973, að náttúruöflin eru ekki háð duttlungum eða hugdettum manna. Þar að baki er sjálfur höfundur og smiður sköpunarverksins, Guð almátt- ugur. Það þótti eftirtektarvert, hve veður var hagstætt mönnum fyrstu vikur gossins, ef miðað er við árstíma og hvemig veðurlagi er almennt háttað á vetrarmán- uðum í Vestmannaeyjum. Einkennandi fyrir veðurfar Vestmannaeyja eru miklir stormar, aðallega af austri til suðausturs. Þar eru austlægar áttir allt að 60—70% af umfangi allra storma. Þann 22. janúar 1972 gekk eitt af þessum austan stórviðrum yfir suðurströndina og þá einnig yfir Vestmannaeyjar. Ofangreint kort sýnir lægð á Grr?nlandshafi og samskil við Suðurland. Vindur er all mikill við Suðurströndina, 65 hnútar/ klst. af austri, sem jafngilda 12 vindstigum eða fárviðri. Tölu- verð úrkoma fylgir skilum þess- um. Handan við skilin er suð- vestan átt, hvassviðri og er vind- hraði 40 hnútar/klst. og gengur á með skúrum. Þetta veðurlag leiddi til þess, að allur fiskiskipa- flotinn var í höfn í Eyjum og var beðið þess að veðrið gengi niður. Um miðnæturskeið eru sam- skilin gengin vel inn á landið (sbr. kort II) og snögg umskipti hafa orðið á veðri. Austan fárviðrið horfið en þess í stað komin suð- suðvestan gola með skúrum. Að- faranótt þess 23. janúar var komið gott sjóveður í Vest- mannaeyjum og tóku menn þá til óspilltra málanna að ræsa út og gera allt klárt, eins og það er kallað. Það er ljóst, að vera fiskiskipa- flatans þessa örlagaríku nótt á Heimaey varð forsenda björg- unar og þungamiðja hennar hvað mannslífin snertir. Margir hafa undrast yfir þessari atburðarás. Engin skýring er til önnur en sú, að hér hafi náð og miskunn Drottins og frelsara okkar verið að verki. Davíð konungur kemst Cisli Óskarsson lauk prófi frá Kennaraskóla íslands 1971, stundaði siðan framhaldsnám við Kennaraskólann i Kaupmannahöfn og er nú kcnnari við fram- haldsskólana í Vest- mannaeyjum.

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.