Afturelding - 01.01.1983, Blaðsíða 27
RÉTTIR _ ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR
ákvörðun verður tekin í þinginu í
febrúar—mars. Vennegam með tilheyr-
andi höll var stöð fyrir alkohólista á veg-
UIT> sænsku heilbrigðisþjónustunnar.
LP-stofnunin ætlar sér að nota Venne-
gam sem griðland fyrir alkóhólista og
fjölskyldur þeirra, skapa áfengislaust
samfélag.
HV 183
Klaustrið í Erfurt, A-Þýskalandi, þar
sem Marteinn Lúther dvaldi sem munkur
°g prófessor 1505—1511, á nú að verða
alþjóðleg kirkjumiðstöð.
Klaustrið var stofnað 1276 og það var
þar sem Lúther lagði gmnninn að kenn-
>ngu sinni. Eftir ýtarlegar Biblíurann-
sóknir gaf hann yfirlýsingar, sem að
lokum leiddu til aðskilnaðar hans frá ka-
þólsku kirkjunni.
A-þýsku kirkjumar vilja samt ekki að
klaustrið verði dauður minnisvarði,
heldur að klaustrið verði lifandi miðstöð
og mæti brýnni þörf í starfi kirkjunnar.
HV 383
f febrúar var fundur fulltrúa Samein-
uðu Biblíufélaganna, Kaþólsku biblíu-
stofnunarinnar og ýmissa forsvara
kristniboðsfélaga auk kirkjuleiðtoga í
Jerúsalem. Tilefnið var að skipuleggja
starf ársins 1984, en það verður alþjóðlegt
Biblíuár. Meðal annars verður lögð
áhersla á að ljúka við þýðingu Biblíunnar
h fjölmörg tungumál, sem enn eiga ekki
Bibliuna.
Frumkvæðið kemur frá Noregi og
heitir forystumaðurinn Frank Kaleb Jan-
sen.
HV383
Enn berast fréttir um mikla erfiðleika
hinna kristnu í Albaníu. Margir trúaðir
eru algjörlega einangraðir frá þeim fáu
Prestum, sem enn eru á lífi og halda áfram
þjónustu sinni þrátt fyrir bönn.
Prestar, sem gripnir eru við brauðs-
hrotningar í heimahúsum, eru dæmdir til
langvarandi vinnubúðavistar. Fjölskyld-
UT koma daglega saman til bæna, þrátt
fyrir vissu um að ef upp kemst, þá bíða
vinnubúðirnar og þarf ekki réttarhöld til
að kveða upp dóminn. Einn hinna kristnu
sagði: „Við biðjum ekki aðeins fyrir
sjálfum okkur, heldur fyrir öllum þeim
sem þjást. Þjáning okkar hefur hreinsað
hú okkar.“
Meðal hinna kristnu gengursaga um að
háttsettur maður í lögreglunni, þekktur
fyrir hatursfulla andstöðu við kristið fólk,
hafi komið með alvarlega veikt bam sitt í
kirkju og beðið hina kristnu um fyrirbæn.
Barnið varð alheilbrigt og maðurinn gaf
peninga til endurreisnar kirkjunnar.
Famar hafa verið kröfugöngur 1
Norður-Albaníu og þess krafist að kirkjur
og moskur verði aftur opnaðar. Ferða-
menn hafa hitt böm, sem fædd eru eftir
1976 og bera kristin nöfn, en það ár var
bannað að nefna nöfnum sem visuðu til
kristinnar trúar.
EH 183
Stærsta deild Hvítasunnumanna í
Bandaríkjunum eru Assemblies of God.
Þeir hafa nú í þjónustu sinni 23.000
predikara. Þessi hreyfing vex mjög ört,
um árabil hafa Assemblies of God verið í
fremstu röð hvað varðar meðlimafjölgun
og stofnun nýrra safnaða í Bandaríkj-
unum.
KS 1083
Eftir tveggja vikna samkomuherferð
Reinhards Bonnke í Natal, S-Afríku,
höfðu 6107 gefist Kristi. Nú eru 15 ár
síðan Bonnke hélt fyrstu predikun sína
yfir litlum hópi Afríkana í Newcastle, S-
Afríku, áður en hann fór í sína fyrstu trú-
boðsferð til Lesotho.
KS 1083
Nú eru tíu ár liðin frá því að fyrsti
frjálsi kristilegi skólinn var stofnaður í
Danmörku. Síðan hafa 24 slíkir skólar
stofnað „Landssamband um stofnun
frjálsra kristilegra skóla."
Það var fyrst í fyrra að ekki bættist við
neinn nýr skóli, fram að þessu hefur
nemendafjöldi vaxið jafnt og þétt, en
nokkuð hefur dregið úr þeim vexti und-
anfarið.
KS 1083
I fyrsta skipti í kirkjusögunni mun
yfirmaður Kaþólsku kirkjunnar predika í
mótmælendakirkju og ræðuefnið verður
Marteinn Lúther.
Leiðtogi Evangelísku-Lúthersku kirkj-
unnar á Ítalíu, Christoph Meyer, Róm,
tilkynnti að Jóhannes Páll II páfi mundi
predika í evangelísku Kristskirkjunni í
Róm. Tilefnið er 500 ára minning fæð-
ingar Marteins Lúthers. Vatíkanið hefur
lýst velþóknun sinni yfir þessa svonefndu
„safnaðarheimsókn". Ekki var búið að
ákveða dagsetningu heimsóknarinnar,
þegar þetta var ritað.
flÉTTlR _ ERLENDAR FRÉTTIR - ERLENDAR FRÉTTIR
- ERLENDAR FRÉTTIR
Evangelíska-Lútherska kirkjan, var
stofnuð 1948 og tilheyra henni 15 þýsku-
mælandi og ítalskir söfnuðir. Yfir 99,6%
Itala eru kaþólskir.
EH 183
Þeir kristnu ættu að biðja meira saman
og stríða minna hver við annan. Svo sagði
Karl Carstens forseti Vestur-Þýskalands í
ræðu nýlega. Honum þótti athyglisvert
hve margir kristnir hafa gleymt bæninni.
— Þegar maður spyr lækna, félagsráð-
gjafa og sálfræðinga, sem 1 starfi sínu fást
við sjúkt fólk, plagað af depurð og ótta,
hvort þeir hafi nokkum tíma reynt að
hjálpa hinum sjúku með bæn. er maður
oft álitinn vera skilningslaus, já maður er
næstum litinn meðaumkunaraugum fyrir
að hafa svo gamaldags viðhorf, sagði for-
setinn.
Hins vegar er oft mikil togstreita meðal
hinna kristnu um pólitísk, félagsleg og
þjóðfélagsleg málefni, þar sem hver og
einn í hinum ýmsu stjórnmálaflokkum
vitnar í fagnaðarerindið. Þá gleymist að
öllum getur orðið á í þessum málaflokk-
um. Aftur á móti höfum við fast undir
fótum þegar við sameinumst í bæn og
áköllum Drottin vom, sagði Carstens og
hvatti þá kristnu: Biðjum meira saman,
hvert með öðru!
HV 183
Ameríska Bibliufélagið hefur greint frá
merkilegu þorpi í suðurhluta Dóminí-
kanska lýðveldisins. Þorp þetta á tilveru
sína að þakka „dularfullu" eintaki af
Nýja testamentinu. Enn ídagveitenginn í
Mancebo fjölskyldunni hvaðan bókin
kom en fyrir hálfri öld fannst hún í
heimili fjölskyldunnar, sem þá bjó í litlu
þorpi í Dubjele sýslu. Fjölskyldan las allt
Nýja testamentið og fannst hún þurfa að
miðla því með nágrönnum sínum. Fyrir
áhrif Nýja testamentisins byggðu þorps-
búar kirkju, það varð þeim hvatning til að
helga sig þessu enn meira. Þeir ákváðu að
endurbyggja allt þorpið og raða íbúðar-
húsunum hringinn í kringum kirkjuna.
Þeim fannst það sýna á jákvæðan hátt að
Orðið var orðinn miðdepill lifsins. f dag
er þorpið orðið að litlum bæ, nýjar kyn-
slóðir eru fæddar og nýir prestar eru
komnir til að þjóna í kirkjunni. Hún
stendur enn sem andlegur og skipulags-
legur miðpunktur bæjarlífsins, upp-
spretta lifandi kraftar og tákn um trúna
sem styrkist með hverju ári.
Charisma 1282
- ERLENDAR FRÉTTIR