Afturelding - 01.01.1983, Blaðsíða 21
Gullkorn frá
upphafi Hvíta-
sunnuvakningar
Á árunum 1904 — 1907 var gefið út í Reykjavík tímaritið Trú. Birti það greinar um kristileg efni.
Ritstjóri þess og útgefandi var Samúel O. Johnson, trúboði, sem starfaði á þessum árum í Reykjavík. Því
miður fer litlum sögum af því hver Samúel var, né heldur hver árangur af störfum hans var.
í tímaritinu Trú er fyrst minnst á Hvítasunnuhreyfinguna í íslenskum heimildum og birtum við hér til
gamans 2 greinar frá 1907, þar sem greint er frá vakningunni í Los Angeles, 1906.
Los Angelos er nú gagntekinn
of trúarvakningu, sem minnir oss á
þá, sem lýst er i Postg. 2. kap.
Frá þessum fagra bæ í Cali-
forníu koma fréttir um verk
Heilags anda á svo dásamlegan
hátt, að vér getum ekki annað en
fagnað og þakkað Drottni fyrir
hans óendanlegu náð! Oss er rit-
að þaðan: Hvítasunnuhátíðin er
vissulega hingað komin með öll-
um opinberunum Guðs kraftar,
sem fram komu á hinni fyrstu
hvítasunnuhátíð á dögum post-
ulanna.
Samkomumar fara fram í
gamalli meþódista kirkju, sem að
uokkru leyti hefir verið breytt í
'búðarhús. Það sem ennþá ereftir
af kirkjunni er stór salur, sem
líkist að byggingunni til, að
niestu leyti hlöðu með óstein-
limdum veggjum. Þangað safn-
aðist daglega um 12 manns að
halda samkomu.
Brátt fór Drottinn að opinbera
sinn kraft og rúmið að verða of-
lítið fyrir allt það fólk, er inn vildi
koma. Nú eru samkomurnar
haldnar allan daginn og langt
fram á nótt og hinn heilagi eldur
breiðist út um allan bæinn og hið
nærliggjandi hérað. Stoltir,
prúðbúnir ræðumenn koma til
þess að „rannsaka", en brátt
breyttust þessar stoltu rannsóknir
þeirra í undrun, og svo sann-
færðust þeir, og rétt á eftir má sjá
margan á meðal þeirra liggjandi
á hinu óhreina gólfi, biðjandi
Guð um fyrirgefningu og bams-
legt hugarfar. Það er ómögulegt
að segja, hversu margir hafa
snúið sér, helgast og fyllst Heil-
ögum anda. Það leggja daglega
fleiri og færri af stað í allar áttir,
að boða hið heilaga fagnaðar-
erindi.
Það er sagt að þessi trúarvakn-
ing standi í sambandi við hina
guðlegu opinberun, sem byrjaði í
Topeka í Kansas fyrir 5 árum.
Nokkrir vinir komu saman til
þess að rannsaka Guðs orð, og
fundu, að enginn, sem þeir
þekktu, hafði hvítasunnueldinn,
sem postulunum var gefinn. Þeir
sneru sér því til Guðs orðs, sinntu
engu öðru, og báðu Drottinn að
vísa sér veginn og efla viljann í
hjörtum þeirra.
Þegar þeir voru skírðir, „sáust
eldtungur yfir höfðum þeirra“,
segja þeir-sjálfir, og „þá skildu
þeir fyrsta kapítulann í Efesus-
bréfinu.“
Þrettán þúsund sálir hafa, síð-
an þessi atburður varð, orðið
blessunarinnar aðnjótandi.
í Los Angelos „kom hinn
Heilagi andi yfir samkomuna
þrjú kvöld.“ Fólkið gjörði ekki
annað en biðja til Drottins og
vegsama hann; „það fór að tala
anndrlegum tungum eins og á