Afturelding - 01.01.1983, Blaðsíða 29
sakað þær. Það má vera að van-
þekking ráði þar mestu um. Ég
þekkti ekki Guð eða skyldur mínar
gagnvart honum eða hans mikla
kærleika, að deyja fyrir mig. Ég hefi
verið of fáfróður um hina slæmu
hegðun mína með tilliti til annarra.
En þessi fáfræði er þó ekki raun-
veruleg afsökun, af því að ég átti að
vita betur. Ég hefði átt að lesa Biblí-
una og hlusta á þá sem vildu kenna
mér og koma fyrir mig vitinu. Ég
hefði átt að hugsa um sál mína og
hrópa til Guðs um hjálp. En ég gerði
það ekki. Og nú er eins og rnunnur
minn sé lokaður. Ef nú geri ég hér
með játningu mína frammi fyrir
Guði sem sekur maður, án afsök-
unar, sem verðskuldaði reiði Guðs
nú og um eilifð. Það er ekki einungis
uð ég játa þetta fyrir mér einum,
heldur hefi ég líka syndgað í nærveru
fjölskyldu minnarog í nærveru fólks
umhverfis mig. Ég játa fúslega syndir
mínar og mig iðrar þess að hafa drýgt
þær. Ég játa fyrir hinurn kristnu, fyrir
fjölskyldu minni og fyrir heiminum.
Ég fyrirvarð mig ekki áður fyrir
ðrýgðar syndir, en nú vil ég opinber-
^ega játa þær allar.
Fjórða skrefið: Syndin fjarlægð
Það er ekki einungis að ég sjái
sjálfan mig sem syndara og hati þær
og játi framnri fyrir Guði og mönn-
um, heldur geri ég nú, með Guðs
hjálp, yfirbót og betrun og læt af
þeim, hversu mikla ánægju svo sem
ég hefi haft af þeim í fortíðinni og
hvað sem þær vilja lokka niig til að
gera í framtíðinni. Ég játa hér og nú í
krafti Guðs að ég fjarlægi þær allar
og lofa að drýgja þær ekki meir.
Fimmta skrcfið:
Beðið um fyrirgefningu synda
Með þá tilfinningu í huga hversu
sntánarlega ég hefi snúið mér frá
hinum himneska föður mínum, með
því að hafna elsku hans, brotið boð-
orð hans og haft áhrif á aðra að gera
hið sama, krýp ég hér og nú í allri
auðmýkt frammi fyrir þér himneski
faðir. Miskunnaðu mér aumum
syndara og ég bið þig í nafni Jesú
Krists að fyrirgefa ntér allar syndir
mínar, stórar og srnáar og veita mér
Guðsbarnaréttinn.
Sjötta skrefið: Helgun
Ég lofa því Guð, hér og nú, í krafti
þínum og af öllu hjarta, að ef þú vilt
fyrirgefa ntér allt og taka ntig að þér,
vil ég frá þessum degi vera þinn trú-
fasti þjónn og lofa þér að eyða því
sem eftir er ævi minnar þér til dýrðar
og flytja boðskap þinn um kærleika
og elsku Jesú Krists, þeim sem ekki
þekkja hann.
Sjöunda skrefið: Trú
Ég trúi að Jesús Kristur, sonur
Guðs, í mikilli miskunn sinni og náð.
hafi dáið fyrir mig og hafi borið
syndir mínar upp á krossinn. Og í
þeirri trú býð ég hann velkominn inn
í hjarta nritt, sem Frelsara ntinn frá
synd. eigingirni, frá valdi Satans og
frá glötunarstaðnum. Jesús Kristur
segir í Biblíunni eins og áður hefur
verið nefnt, að ef ég komi til hans,
muni hann alls ekki reka mig í burtu.
Ég leita hans nú af öllu hjarta, sem
aumur hjálparvana syndari. leitandi
frelsisins. Ég veit að hann mun ekki
hafna mér, heldúr taka niig að sér og
fyrirgefa ntér. Blóð hans, sem rann á
Krossinum, hreinsar í burtu allar
mínar syndir. Hann var særður
vegna rninna synda og kraminn
vegna minna misgjörða og hegningin
sem ég hafði til unnið kom niður á
honum og fyrir blæðandi sárin hans
er ég læknaður og tilheyri fjölskyldu
hins sanna lifandi Guðs. Ég hefi
hlotið fyrirgefningu og er frelsaður.
Dýrð sé Guði!
Þýtt: Garðar Loftsson.