Afturelding - 01.01.1983, Blaðsíða 19

Afturelding - 01.01.1983, Blaðsíða 19
líf myndaðist af tilviljun einhvers staðar í hinum þekkta alheinti síðan heimurinn myndaðist. Líkurnar voru svo litlar að þeir skrifuðu í Daily Ex- press of London (14.08. 81) að lífið á sér skapara. Líkurnar fyrir því að einn einfrumungur hefði myndast einhvers staðar, einhverntíma, voru álíka miklar og að hvirfilvindur sem færi í gegnum ruslahaug myndi búa til Boeing 747 þotu. Louis Pasteur uppgötvaði að öll eggjahvítuefni úr lifandi frumum innihalda aðeins eina gerð af amínosýrum (levo-aminosýrur). Ef tilviljun ein ræður í sköpuninni, ætti að vera jafnmikið af báðum gerðum aminosýra (dextro og levo). f minnstu eggjahvítusamböndunum eru mörg h und ruð aminosýrur og eru þvi líkurnar að þær verði allar eins, ótrúlega smáar ef aðeins tilviljun ræður sköpuninni. Sem sagt, líf er ekki ntyndað af tilviljun, það þarf skapara. Þróun frumlifs til dýra? Nei, sköpun!') Þróunarkenningin segir að heild- aráhrif margra lítilla breytinga í röð sé ný tegund lífs. Því ætti að vera hægt að finna í steingervingunum tengiliði á milli tegunda eða hlekki í þróunarkeðjuna. Þessir hlekkir hafa ekki fundist, er álit vísindamanna ®m rannsaka steingervinga. Um- •næli þeirra verða rakin hér á eftir. Þróunarkeðjan er þessi: frumdýr verður að fiski, fiskur að skriðdýri, skriðdýr að spendýri. Um manninn verðu fjallað í lokin. I' rumdýr verður að fiski I gömlum jarðlögum (frumlífsöld) finnast skyndilega steingervingar margra tegunda hryggleysingja. Þessir hryggleysingjar lifa í sjó og Þorsteinn K. Ósk- arsson fæddist í Vest- mannaeyjum 1949. Hann er doktor í eðlis- fræði frá Háskólanum í Maryland, Bandaríkj- unum. Hann kennir nú við Tækniskólann og Háskóla íslands. hafa margar frumur. Engir stein- gervingar finnast í eldri jarðlögum, ritar D. Axelrod.2) Það er engin ástæða að mikil þróun hafi átt sér stað. Kórall hefur ávallt verið kórall og marglytta ætíð verið marglytta. Tengiliðir í þróun hryggleysingja til fiska (hryggdýra) eru ekki til.3) Fiskur verður skriðdýr Hugmyndin er að fiskur verði að salamöndru eða að neðri uggar fiskjar breytist í fætur. Síðan verður salamandran að skriðdýri eins og gerist hjá froskum. A.S. Romer4) ritar að hlekkurinn í þróunarkeðj- unni á milli fiskjar og salamöndru sé ófundinn. Skriðdýr verður fugl Steingervingar hafa ekki fundist sem tengja breytingarfrá skriðdýri til fugls, ritar W.E. Swinton.5) Skriðdýr verður nagdyr eða spendýr Steingervingar hafa ekki fundist er tengja breytingarnar frá skriðdýrum til nagdýra, ritar A.S. Romer.6) Á tímum Darwins þótti augljós sönnun fyrir þróunarkenningunni þróun hestsins. Elstu forfeður hans voru á stærð við hund og hægt var að raða steingervingum þannig að keðjan var hér um bil óslitin. Það var bara tímaspursmál hvenær þessi keðja yrði heil. „í dag er vitað að þessi þróun er í stökkum og mikið flóknari en þá varhaldið,“ ritar D.M. Raup.7) Tíminn hefur leitt það í ljós að það vantar hlekki í þróunarkeðju hestsins. Auðvitað skapaði Guð hestinn eins og allar aðrar tegundir dýra og „forfaðir hestsins“ er útdauð dýra- tegund. Þróun mannsins? Nci, sköpun! Um þróun apanna segir E.L. Simons.8) „Þrátt fyrir nýja stein- gervinga er uppruni apanna hulinn." Það hafa ekki fundist týndu hlekkir apanna! Hvað segja fræðimenn í dag urn tengiliðina sem menn trúðu áður að væru í þróunarkeðju mannsins. Raniapithccus er api segir Dr. Robert Eckhard.9) Astropithecus er api segir Lord Zuckerman.10) Homo erectus er api sagði Eugene Dubois"11) eftir að hann fann Homo erectus og hafði sannfært suma um að þetta væri einn hlekkur i þró- unarkeðju mannsins. Neanderdalsmaðurinn er maður sagði Dr. A.J.E. Cave á alþjóðlegri ráðstefnu dýrafræðinga árið 1958. Dr. Cave rannsakaði beinagrind Neanderdalsmannsins og komst að því að fornmaðurinn hafði þjáðst af gigt og vítamínsskorti, því bein hans voru bogin. Flestir vísindamennirnir sem segja þetta, trúa þróunarkenningunni, þó niðurstöður þeirra gefi þeim ekki ástæðu til þess. Ert þú sannfærður um sköpun Guðs eða þróun lífsins? Lokaorð Þegar þróunarkenningin kom fram fyrir 120 árum, þótti mörgum að sköpunarfrásögn Biblíunnar gæti ckki staðist. Því væri sjálfsagt að varast að fullyrða nokkuð um sann- feiksgildi Biblíunnar. Á síðustu 120 árum hefur þekking mannanna aukist mikið. Það hefur þurft að breyta þróunarkenningunni svo hún samræmist nýjurn niður- stöðum en sköpunarfrásögn Biblí- unnar er í fullu samræmi við þekk- ingu okkar. I dag er ómögulegt að samþykkja stöðuga þróun einmitt vegna þess að vitneskja mannsins hefur aukist. Þeir menn sem vilja trúa þróun og hafna sköpun Guðs verða stöðugt að að- hæfa þróunarkenninguna nýjum staðreyndum. í dag segir þróunar- kenningin að mjög ör þróun geti átt sér stað, en þetta er hrein ágiskun, því engar sannanir eru til fyrir þess- ari öru þróun. Staðreyndirnar eru í fullu samræmi við sköpun Biblíunn- ar. Darwin trúði að þróunarkeðja mannsins yrði fullkomnari eftir því sem vitneskja ntannsins ykist, en í dag vantar alla hlekki í þróunarkeðju mannsins frá apa. 1 dag vitum við að Framhald á bls. 30

x

Afturelding

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afturelding
https://timarit.is/publication/406

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.