Afturelding - 01.01.1986, Blaðsíða 14
Einar J. Gíslason
Látið f relsast!
Fyrirsögnin er tekin úr ræðu
Símonar Péturs Jónassonar fiski-
manns frá Betsaída, síðar post-
ula og rithöfundar.
Andlegu fólki eru orðin kunn,
en samt vekja þau spurningu.
Frá hverju skal frelsast?
Frelsunin er altæk og nær yfir
lífið á öllum sviðum. Maður skal
frelsast frá syndum og glötun,
löstum, vímugjöfum, bölvi og
vondu hugarfari. En þegar Sím-
on Pétur sagði: „Látið frelsast!"
þá var framhaldið: „...frá þessari
rangsnúnu kynslóð“. Var sam-
tímakynslóð Símonar Péturs
rangsnúin? Því verður að svara
játandi og skal það nánar rök-
stutt hér.
Einkenni rangsnúinnar kyn-
slóðar er ávallt hið sama, hún er
í andstöðu við Jesú Krist. Hann
sagði við lærisveinana: „Ef
heimurinn hatar yður, þá vitið
að hann hefir hatað mig fyrr en
yður. Hafi þeir ofsótt mig, þá
munu þeir ofsœkja yður“, (Jó-
hannes 15:18-22). Árekstrar
Jesú við samtímamenn hans
voru vegna rangsleitni þeirra.
„O, þú rangsnúna og vantrúa
kynslóð“, segir Jesús í Matteus
17:17. „Hversu lengi á ég að
vera hjá yður“. Þessi sama kyn-
slóð heimtaði tákn, Jesús svar-
aði: ,, Vond og hórsöm kynslóð
heimtar tákn“. Hér var vantrú
orsök rangsleitninnar.
Er þá hórdómur og siðleysi
einkenni vondrar kynslóðar? I I.
Mósebók 19. kafia getum við
Iesið um borgarlífið í Sódómu.
Það var hræðilegt. Þetta líferni
kallaði hræðilegan dóm og gjör-
eyðingu yfir borgirnar þar sem
lifað var óguðlega...... Vegna
þessa kemur reiði Guðs yfir syni
óhlýðninnar“ segir Páll postuli í
Efesusbréfi 5:1-8. Hámark sið-
leysisins kemur fram í kynvill-
unni. Menn tala um þessa hluti í
dag kinnroðalaust og án blygð-
unar. „Leggist karlmaður með
karlmanni, sem kona vœri,
fremja þeir báðir viðurstyggð.
Þeir skulu líflátnir verða. Blóð-
sök hvílir á þeim...“ Svo mörg
voru þau orð III. Móseþókar.
Skyldi slík iðkun í dag nokkuð
koma blóðinu við? Hefur nokk-
ur heyrt um AIDS og skelfing-
una, sem því fylgir? Menn hafa
dæmt Gamla testamentið fyrir
hörku og miskunnarleysi, en það
segir bara frá hlutunum eins og
þeireru.
Var kynslóð Jesú sú eina sem
kann að hafa talist rangsnúin?
Svarið er nei. Sé kynslóð okkar
siðlaus og hórsek, þá á viðvörun
Símonar Péturs svo sannarlega
erindi til okkar: „Látið frelsasl
frá þessari rangsnúnu kynslóð!"
í Rómverjabréfinu hvetur Páll
hina kristnu í Róm: „Hegðið
yður eigi eftir öld þessari“. Verk
fólksins á okkar öld eru siðleysi
og klám, svo yfirgengur alla rétt-
lætiskennd. Fjölmiðlarnir eru
fullir af þessu, jafnvel leiksýn-
ingar, sem bornar eru uppi af al-
mannafé í menningarskyni,
boða siðleysi, lauslæti og fram-
hjáhald.
„ Vegna þess kemur reiði
Guðs yfir syni óhlýðninnar", var
forðum sagt. Skyldi vond og hór-
söm samtíð okkar eiga eitthvað í
vændum?
„Látið frelsast frá þessari
rangsnúnu kynslóð".
Einar J. Gíslason.