Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1964, Blaðsíða 3

Muninn - 01.12.1964, Blaðsíða 3
B L A Ð AKUREYRI m u n i n n MENNTASKOLANS A DES. MCMLXIV 37. ÁR 2. TBL. Líður að jólum Desember: Skrautlýst stræti og gyllivörur á búðarborðum. Allt er á þönum, allir keppast við að draga í búið og kaupa jóla- gjafir. Spenningur grípur um sig, flest virð- ist úr hömum ganga. Hamagangur eykur glundroða. Glundroði kernur aðeins illu til leiðar. Kyrrð og friður leiða af sér ham- ingju. Eigi að vera hátíð verður að vera hamingja. Jólin eru og eiga að vera um- fram allt hátíð friðarins, sem jafnt aldnir sem ungir taka þátt í. Viðhorf og aðstæður breytast ætíð eitthvað, en þörf mannsins fyrir frið og kærleika er alltaf söm. Vantrú mannsins á kenningum um til- veru guðs og vald hans virðist meiri nú en áður. Nútímamaðurinn óttast hvorki guð né hreinsunareldinn, en hann óttast glundroðann í lífi sjálfs sín. Það er sá ótti, sem læðist inn í vitundina og á upptök sín í nytleysi þess, sem maðurinn skynjar í eig- in verkum. Því meira af andlausum hlut- um og óþarfa, þeim mun meiri ótti, þeim mun meira bergmál frá eigin magnleysi. Allt líf byggist á jafnvægi. Að hugsa er að sjá hlutina og aðstæðurnar í nýju ljósi. Nútímamaðurinn hefur skapað sér mikinn fjölda hluta, en hann hugsar ekki nóg um, að hvaða notum þeir megi sannast koma, eða til hvers þeir eiginlega eru. Jólagjaf- irnar geta verið dæmi urn þetta. í upphafi var orðið, og orðið var hjá guði, og orðið var guð. (Jóh. 1, 1). En hvar er orðið, ef það lifir ekki í stöðugum tengsl- um við fólkið? Merking þess hefur ekkert að segja, sé hún ekki hafin upp í annað veldi í vitund mannsins. Til eru mörg boð- orð, gnótt af spakmælum og lífsvizku. Hvarvetna liafa vitringarnir skráð speki sína. Aldrei hafa verið fleiri menn en nú, sem boða kærleika, frið og eilíft yndi o. s. frv., aðeins ef við göngum öll sama veg og lokum augunum fyrir öðrum leiðum. En kennisetningar og fyrirfram ákveðnar for- múlur til að lifa eftir hæfa ekki skapgerð mannsins. Leiðir manna á lífsbrautinni liggja víða. Það er aðeins ein leið, sem við göngum öll, — leiðin til dauðans. En leik- sviðið, — lífið, þar sem veruleikinn talar, — það eitt getur hrifið okkur til samstöðu, — til sameiginlegrar hugsjónar, sem varpar öllu fyrir borð, sem ekki samræmist æðstu hugsjón allra hugsjóna: að lifa fyrir lífið sjálft, — en lifa ekki til að hrúga saman vesælu gulli o. s. frv. Hversu oft höfum við ekki heyrt álíka orð og þessi? En hvers vegna eru þau sífellt hundsuð af langflest- um okkar? Er það skilyrði fyrir því, að við höldum áfram að lifa, að við göngum sí- fellt ofan í sömu forarpyttina og forfeð- urnir hafa gert? MUNINN 31

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.