Muninn

Árgangur

Muninn - 01.12.1964, Blaðsíða 33

Muninn - 01.12.1964, Blaðsíða 33
Sem oft áður, hófst íþróttastarfsemi vetr- arins með knattspyrnumóti, sem er að vísu ekki enn lokið að fullu. Úrslit eru þó feng- in, þar sem 5. bekkur hefur tryggt sér sigur, enda þótt þeir eigi einum leik ólokið, gegn 6. bekk. Er liðið vel að sigrinum komið, þar sem það hefur á skipa mörgum allsæmi- legum leikmönnum, með þá Pál Ragnars- son og Arnar Einarsson sem styrkustu stoð- ir. Úrslit mótsins urðu sem hér segir: 1. ) 5. bekkur 4 stig og einum leik ólokið. 2. ) 4. bekkur 3 stig. 3. ) 3. bekkur 2 stig. 4. ) 6. bekkur 1 stig og einum leik ólokið. í sambandi við komu Samvinnuskólans hingað norður fór fram knattspyrnuleikur, sem lyktaði með sigri gestanna 3:2. Þá hef- ur farið fram leikur milli skólans og skip- verja af brezkri freigátu, senr hér var á ferð, og biðu fulltrúar hins brezka stórveldis hraklegan ósigur gegn hinum sparkvissu skólastrákum 0:3. Þegar íþróttahúsið varð seint um síðir tilbúið til notkunar, hófust æfingar í inn- anhússíþróttum af miklu kappi. Virðist „Auðvitað er þetta slænrt,“ samsinnti Yegorka. „Bændurnir sjá við öllu og skilja allt, hvað er hvað og hvers vegna, nú, og kvenfólkið stendur þeim að baki á þroska- brautinni." „Þetta er slænrt,“ sagði ég, og horfði á bakið á Yegorka. Það var horað og rifið, og gult flókafóðrið lafði víða í henglum út um götin. sem óvenju mikill áhugi sé ríkjandi fyrir íþróttum, einkum meðal 3. bekkinga. Lið körfuboltamanna lék gegn Sam- vinnuskólanum um daginn og hafði sigur í þeirri baráttu 50:42 eftir jafnan og skemmtilegan leik. Þá tók í. M. A. þátt í hraðmóti Akureyrarliðanna í körfubolta. Stóð liðið sig vonunr franrar, þar sem það sigraði Þór nreð 23:22, en beið hinsvegar nrikinn ósigur gegn K. A. í úrslitaleik 69:29. Liðinu tókst betur til, þegar ófar- anna skyldi lrefnt nú fyrir skenrnrstu. Þá urðu tölurnar 84:58. Frjálsar íþróttir standa með nriklunr blóma. Breidd er nokkur, en enn sem fyrr ber Kjartan Guðjónsson höfuð og herðar yfir aðra. Á móti, senr haldið var í tilefni af komu Samvinnuskólans, hér unr dag- inn, tókst honum að setja nýtt skólamet í hástökki, stökk 1.93 m. Einnrg er Haukur Ingibergsson léttur og efnilegur íþrótta- maður. Ekki varð úr, að skólamótið í frjálsum íþróttum yrði haldið nú í haust og verður það að bíða nýs árs eins og fleira. Framundan eru nú nriklar sviptingar á sviði íþrótta lrér í skóla. Fyrst verða lrrað- mót í körfu- og haldbolta, þá blakmótið, umfangsmikið að vanda. Eftir áramót kenr- ur væntanlega flokkur íþróttamanna úr M. R. Auk þess verða hin árlegu nrót í körfu- og handbolta og sundi. Einnig mun vera ætlunin að endurvekja keppni í hniti ýbadminton), sem legið hefur niðri í nokk- ur ár. Virðist því sem yfrin nóg verkefni séu framundan. /• MUNINN 61

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.