Muninn - 01.12.1964, Page 18
Laxinn
Veruleiki um draum
Þú leitai' stöðugt þess, sem ekki er
og aldrei verður nema í draumsins mynd,
því ekkert stenzt, sem ímyndarðu þér,
og ástin reynist jafnvel ekki blind.
Veruleiki og ímynd þess, sem er,
er ei það sama og stundum ekkert líkt,
og lífsins reynsla loks mun segja þér,
að login mynd hins sanna er alltaf ýkt.
ká há.
Aleinn í hamrinum háa ég sit
og horfi í iðunnar flaum.
Þarna í bullandi löðrinu lít
laxinn, sem berst þar gegn straum.
Ég spyr hann: Hvað viltu vinur minn
svo válegu straumkasti mót?
Ofan þess bíður hann óvinur þinn
öngull, sem þyrmir ei hót.
Er ástæðan sú, að þú ímyndir þér
óskalönd draumfögur þar,
hvar lífið einn dásemda leikur er?
En laxinn hann veitir ei svar.
Eða leiðir þig núna og lokkar sín til
ljúfastur bernskuheims tregi,
þar sem lékstu þér ungur í lognværum hyl?
En laxinn hann svarar mér eigi.
b p
46 MUNINN