Muninn - 01.12.1964, Qupperneq 36
Vinnsla alúmíns
í þessari grein er ætlunin að lýsa vinnslu
alúmíns í aðalatriðum, án þess þó að lýsa
nákvæmlega vélum þeim og tækjum, sem
til þess eru notuð.
Alúmín, sem er rnjög þýðingarmikill
málmur í nútíma iðnaði, er unnið úr báxíti
(AloO;; •HoO). Báxítið finnst ekki lireint í
náttúrunni, heldur er það blandað járn-
oxíði (Fe203) og silisíumoxíði (Si02). Til
að hægt sé að vinna alúmínið úr báxítinu,
verður að byrja á að hreinsa fyrrnefnd efna-
sambönd úr því. í Noregi er notuð svo-
nefnd Pedersens-aðferð og verður henni
lýst bér.
Fyrst er málmgrýtið mulið og hitað upp
í 400° C. í ofni. Eftir að bafa farið í gegn-
um kæli er hið brennda báxít fínmalað í
kúlnakvörn. Kúlnakvörnin er ekki ósvipuð
steypuhrærivél, sem í eru harðar málmkúl-
ur, er fínmylja málmgrýtið. Þegar blandað
hefur verið saman við það kalsíumoxíði
(CaO) og sóda (NA2C03), er það hitað upp
í 1000° C. í ofni. Vatnið klofnar þá frá, og
alúmínoxíðið gengur í samband við sód-
ann og kalsíumoxíðið.
A1203 -f Na2CO, COof + 2Na [A102]
A1o03 + CaO ^ Ca [AlOojo
Einnig gengur silisíumoxíðið og járnoxíðið
í samband við sódann og kalsíumoxíðið.
Fe203 + Na2C03 COof + 2Na [FeOo]
Fe203 + CaÖ Ca [FeÖ2]2
SiOo + Na2CO, CO,f + Na2Si03
SiOo + CaO CaSi03
Silisíumoxíðið og alúmínoxíðið sameinast
einnig sódanum.
SiOo + A1203 + Na2C03_^ COL,|
+ Na2 [AloSiO,;]
Eftir að hafa verið kælt er gjallinu bland-
að í vatn. Hin toruppleysanlegu silíköt og
kalsíumsambönd falla út og eru síuð frá.
64 MUNINN