Muninn - 15.03.1972, Side 5
Á þvi ári sem nú er nýliðið, varð svonefndur
herverndarsamningur islenzkra stjórnvalda við
Bandaríkin 20 ára. A þessum tímamótum virðist
margt benda til þess, að þetta mikla vandamál,
sem íslenzk stjórnvöld kölluðu yfir þjóðina á
sínum tíma, án^þess að leita heimildar Alþing-
is áður, ætli á ný að verða að þv£ mikla hita-
og deilumáli, sem það var frá upphafi, þó svo
að síðustu 4-5 árin hafi nokkuð dregið úr öldu-
ganginum kringum herstöðina og setuliðið.
Sérstaka athygli hlýtur það að vekja £ þessu
sambandi, að nú virðast þeir ætla að hefja
allsherjarátök innanlands £ þessu máli, sem
hingað til hafa viljað komast hjá þv£, að her-
setan væri það deilumál, sem hún hlaut og varð
að vera; þ.e. forystulið Sjálfstæðisflokksins.
Það er þvi ekki -óeðlilest, þó staldrað sé við
á þessum tvöföldu tfmamótum og reynt að gera
upp vfgstöðuna eins og hún er £ dag og gera sér
grein fyrir þvf, hvað áunnizt hefur og hvað
tapazt £ þeirri miklu baráttu, sem háð var
vegna herstöðvarsamningsins.
Rétt er að undirstrika það, að það var þjóðar-
nauðsyn 1951, að herstöðvarsamningurinn við
Bandarikin yrði að mjög heitu innanlands
deilumáli hér. Það ættu þeir, sem stóðu að
gerð þess samnings, öllvun öðrum fremur að
kunna að meta og þakka, að svo varð.