Muninn

Volume

Muninn - 15.03.1972, Page 22

Muninn - 15.03.1972, Page 22
Tæknin hamiar frjálsa hugsun og gerir skil ímyndunar og skynsemi að engu. hessar tvær andstæðu stefnur verða hvor annarri háðar á tilbúnúm sameiginlegum grundvelli og á rætur að rekja til afætueðlis skynseminnar. Er það e.t.v. ekki ljóst af hinni háþróuðu iðnaðar menningu að draumóraleikur með tæknilega og fræðilega möguleika getur orðið að veruleika. Hin rómantíska hugmynd urn vísindalega hlið skáldskap- arins fær á sig æ meiri blæ raunsannaðs yfirbragðs. Hið draumórakennda skynsemdarein- kenni hugarsmxðinnar hefur fyrir löngu unnið sér sess á sviði stærðfræðinnar og ennfremur í eðlisfræðilegum tilgátum og tilraunurn. Þetta einkenni hefur einnig néð viðurkenningu £ sálkönnun, er fræðilegur grundvöllur hennar byggist m.a. á því að sérstök skynsemi eða sam- ræmi er viðurkennt £ fáránleikanum. Þegar rnaður hefur skilið hugarsmfðina þá breytist eðli hennar og hún verður að einskonar heilsulind. En lækningarmátturinn er varasamur og getur jafnvel orðið heilbrigði tauga- kerfisins ofjarl. Það var ekki skáld, heldur visinda- maður sem ritaði eftirfarandi: "Ákveðin efnislegasálkönnun getur gert okkur kleift að standast ímyndunarafl okkar, eða a.m.k. hjálpað til við að takmarka vald pess á okkur. Þegar fmyndunaraflið getur ópvingað notað öll s£n tjáningarforrn til að fram- kalla hinar nargbreytilegu samlikingar og drauna £ eðlilegu draumaástaijdi, getur maður vonazt til þess að 1 ímynd- unaraflið verði uppspretta fölskva- lausrar gleði. Að gera £myndunina ánægjulega og gefa henni lausan taum- inn, þýðir einfaldlega að veita henni fulla virkni sem sálrænum hvata og orku- gjafa". (Gaston Bachelard: Lalv.atéria- lisme rationell, 1953). Imyndunaraflið hefur ekki farið var- hluta af hlutgerðartilhneigingu aldar- andans (þ.e. að lfta á hugtök og mál- efni sem áþerifanlega hluti). Eigin frnyndunarafl rikir yfir okkur og við látum okkur lynda það. Þetta rnyndi sálkönnun sýna og afleiðingarnar auð- pekktar. En að "eigna imynduninni öll tjáningarform" væri skref til baka. Hinir "lemstruðu" einstaklingar (sem einnig hafa lemstrað ímyndunaraf1) myndu skipuleggja og eyðileggja enn meira en peim nú leyfist. Aflausn, sem þessi, myndi hafa i för með sér grimmd án mildandi aðstæðr.a. Hún myndi ekki þýða menningarumhvörf eða öngþveiti, heldur ábyrgðarlausan leik með þá eðlisþætti menningarinnar sem leiða kúgun af sér. Sú imyndun er skynsamleg sem getur haft forgöngu um endurnýjun framleiðslu- kerfisins og urnsköpun þess £ friðsam- legum tilgangi sem miðaði að þv£ að gera ótta útlægan úr sálum nútfma- mannsins. Þesskonar hugsanagangur fær ekki þrifist hjá peim sem kúgun og auði drottna yfir. Að gera hugsur.ina frjálsa, krefst þess að rnörgu verði fórnað sem eðlilegt o^ frjálst pykir £ dag og við heldur kugunartilhneigingum þjóðfélagsins.

x

Muninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.