Muninn - 15.03.1972, Side 48
þú sofandi
cLJCgN
Lándsþingi menntaskólanema lauk í
Reykjavík í nóvember síÓastliðnum.
Þinghald hepjnaðist þrátt fyrir lélega
vinnuaðstöðu og frumhlaup ýmissa þing-
fulltrúa í lok pingsins, má ætla að það
hafi á margan hátt tekist vel. Álykt-
anir um hlutverk luenntaskóla finnast
mér athyglisverðar, einkum þingskjal 4.
Greinile^a vantar þó ályktun um stöðu
menntaskola í þjóðfélaginu, framleiðslu
hæfni og -getu núverandi skipulags á
frjálsum og gagnrýnum þjóðfélagsþegnum.
Að mínu áliti er brýnasta hagsmunamál
nemenda í dag að gera sér ljosa stöðu
sína í þjóðfélaginu, mátt sinn til
breytinga og hina sívaxandi og stór-
hættulegu framleiðslu skólanna á félags-
lega geldum bókabéusum.
Stjórnarliði menntaskóla virðist vera
einstaklega annt um að benda nemendum
á að langskólanám sé tækifæri sem ekki
gefst öllum og við. hin útvöldu,ættum
að vera þakklát. Ef við högum okkur
ekki eins og þeim líkar eigum við á
hættu að þessi réttur verði tekinn frá
okkur. Fáránleg tilhögun að þeir sem
eiga að troða £ okkur þekkingaratriðvun
skuli eiga að fá að hlutast til um
einkamál okkar og hnýsast í einu og
öllu sem við gerum. Letta væri ekki
hægt, ef nemendum væri ekki talin trú
um - með góðum árangri - að skólinn sé
einhver goðgerðastofnun þjóðfélagsins
handa fróðleiksfúsum unglingum. Skil-
yrði þess að þeir samþykki skilmálana
þegjandi og hljóðalaust. Einkunnir,
afmörkun í bekki, stöðug samkeppni.
Frjálst nám er ekki fyrir hendi. Skipti
á skoðunum, timræður ekki heldur.
Þrautfúl skólastofa, maður sem blaðrar
um einhverja fjarleæga, óáþreifanlega,
óskiljanlega hluti. Þetta er andleg
kúgun. "Enska" er hvernig þú geðjast
bezt enskukennaranum. Ef þú geðjast
honum færðu hærri einkunnir, er þetta
einhver hjartans fróðleiksfýsn?
Að þú sért á annari skoðun um námið
eða námsefnið kemur ekki til greina.
Þú átt að láta seg.ja þér hvað þú átt
að gera. Sannleikurinn er sá áo þetta
vill einmitt fjöldi nemenda. Það er
kominn tími til að nemendur geri sér
stöðu sína ljósa í þessum efn\im.