Muninn

Årgang

Muninn - 15.03.1972, Side 54

Muninn - 15.03.1972, Side 54
A hátt hrunginn laufi,skrjáfi í rauðu grasi, grænum h.imnum og bláu ljósi lýstur hugsun minni niður; á skjannahvítt blaðið niður... 2g ætla að fara örfáum formálsorðum að verki mínu, áður en flutningur hefst. Nokkrar skýringar á hugtökvim handa áttavilltum vegfaranda. Efniviðurinn er klassískur. Hin sígildasta athöfn allra tíma í mínum búningi; búningi er gera mun undir- ritaðan rómaðan um álfur að endemum (bannaðan á vissum stöðum, lofsunginn á öðrum). Skálverk! Ii*egintemað er: á priðja glasi. Verkið sjálft í heild sinni er að sjálf- sögðu byggt upp á gífurlegum glasa- fjölda... (A þriðja glasi er hugsunin búin að öðlast nýtt líf: skært sindur orða, samanbarðar setningar; frasar fljúga um borð; bókmálsleg umræðan á köflum og víða .sést maður ekki fyrir... Lærð og óafvitandi tæknibrögð samræðna notuð til hins ýtrasta: glas í augum. A þrið ja glasi örlar sem sagt viða á skýrri hugsun! A þriðja glasi og tali maður um persónuleg málefni er athöfnin opin og er vel tekst til: hreinskilin. A þrið^a glasi eru fjérmál sem og önnur kemisk og utanaðkomandi vanda- mál lögst í létt rúm. A þriðja glasi...) Gott fólk! Þetta var stuttlegur leiðarvísir Skálverks. Að lokum skal ég, sem höfundur verks- ins og ábyrgðarmaður þess, taka fram að Skálverk er á þrem flöskum og tekur yfirleitt 2^ dag í flutningi og er eins og v á hvolfi í lögun. Algeng sviðs- setning til að byrja með: Borð, Plaska Glös. Fasten your seatbelts. No smoking, please. Góða skemmtun! 21.-22. nóv.1971 jóhann. árelíus.

x

Muninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.