Muninn - 15.03.1972, Page 87
að minnast á veru Islands í NATO?
Magnús: Já, það er 'ágreiningsefni innan
flokkanna, hvort Island eigi að vera í
NATO eða ekki. Alþýðubandalagið telur,
að Island eigi að standa utan allra her-
naðarbandalaga, en Framsókn telur, að
við eigum að vera í NATO, um þetta náðist
ekkert samkomulag,og málalokin urðu þau,
að við erum þarna áfram, að óbreyttu á-
standi. En við getum sagt okkur úr NATO
hvenær sem við viljum, með eins árs upp-
sagnarfresti.
Iwuninn; En gefur vera okkar £- NATO Banda-
ríkjunum ekki tilefni til þess að koma
hingað aftur með her, eins og þegar þeir
komu hingað þegar Kóregustyrjöldin braust
út?
Magnús: Jú, það má segja það. Annars er
samningurinn við Bandaríkin á milli okkar
og Bandaríkjanna, en ekki milli okkar og
NATO. En NATO er notað sem röksemd. Það
er alveg rétt.
L.uninn: Hvert verður sambandið við NATO
eftir að herinn er farinn úr landinu?
kagnús: Island hefur aldrei tekið mikinn
þátt £ störfum NATO. Eg held, að full-
trúar Islands hafi aldrei mætt á fundum í
hernaðarnefndinni. Það er meira í orði en
á hnrði.lviuninn: Liig minnir að ég hafi
rekist einhvers staðar á það, að síðast
þegar vinstri stjórn var við völd, þá
hafi íslendingum verið meinaður aðgangur
að vissima skjöliun sökum þess að þeir
gætu komið þeim beint til Rússa.
Liagnús: Það hefur eitthvað verið um
þetta í blöðum og líka erlendis. Ef um
er að reeða einhver merkileg leyniskjöl á
hernaðarsviðinu þá hugsa ég að þeir flíki
þeim ekki við fulltrúa smáríkja, heldur
við þá sem þeir treysta bezt.
ksiniim: Það var talað um það þegar her-
foringjastjórnin komst á í Grikklandi að
OIA hefði staðið þar a bak við. Jafnframt
er talað um að slíkar áætlanir væru til um
öll lönd í NATO nema Island. Þessi
orðrómur gefur til kynna að Bandaríkin
hafi alltaf gert ráð fyrir að Islendingar
væru^sér hliðhollir.
kagnús: Það var talað um leyniáætlun um
að taka völd í löndum þar sem svokallaðir
kommúnistar væru að ná meirihluta eða
sigra. Ég held að Island hafi ekki verið
á þessum lísta yfir lönd, en ætli það staf:
ekki af því að það átti að vera herinn í
hverju landi fyrir sig sem framkvæmdi þetta
og her er ekki íslenzkur her.
njósnir
jv.uninn: Það var í sambandi við brott-
rekstur russnesku sendiráðsmannanna í
London. Nú hefur mikið verið talað \un
umsvif sóvezka sendiráðsins hér á landi.
Þá detta mér í hug raddir í Velvakanda
sem halda fram að Island eigi að taka
sem njósnamiðstöð.
ka^nús: Ef að svo er þá hefur það verið
skipulagt af fyrrverandi ríkisstjórn,