Dýravinurinn - 01.01.1887, Side 44
44
]iessar líta út. Á myndinni á bls. 48 sjá menn liundinn fastan í vjelinni, en á
myndinni á bls. 44 er verift aö skera hund i stmdur.
Dæmi þau upp á vivisektionir, semhjer hafa veriö skráð, eru ílest tekin
úr þýzku riti einu, er sDar hefur verið þýtt á möi'g tungumál, og fer það mjög
ómildum orðum um vivisektionirnar. þar er aragrúi af álíka sögum, og þó
sögurnar að öllum líkindum sjeu, flestar eða allar, sannar, þá er ekkert fært til
beti’i vegar og, í öllu falli, valið af veiri endanum; en sögur þessar bera allar
þess Ijósan vott, að ógurlegur ai’agrúi af skepnum hafi oröið að þola kvalafullan
dau'a, til þess að seðja íi’óðleikstýst mannanna og veita þeim það gagn, sem sá
fróðleikur hefur í för með sjer.
þó mönnum gremjist að liugsa til allra þeirra kvala, er skepnurnar hafa
orðið að þola á [lennan liátt, þá mega menn þó ekki gleyma því, að leiðin til
þekkingarinnar, þegar leitað er að nýjum sannleika, er allajafna bæði löng og
grýtt, og að mótstöðumönnum vivisektionanna mun veita það næsta örðxxgt að
sanna það, að | ær hafi ekki gjört mannkyninu mikið gott.