Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.01.1957, Qupperneq 32

Heimilisblaðið - 01.01.1957, Qupperneq 32
þessu athygli og lagði á flótta. Hún var ekki í neinum vafa um, að hún væri hlægileg í græna kjólnum, sem Rosalie valdi efni í og saumakonan í Goderville saumaði sam- kvæmt tilvísun hennar sjálfrar. Hún þorði ekki lengur að spyrja vegfar- endur til vegar. Samt gerði hún það um síðir og komst slysalaust heim að gistihús- inu, sem hún bjó í. Það sem eftir var dagsins, sat hún á stól hjá rúmgaflinum, án þess að hreyfa legg né lið. Síðan borðaði hún kvöldverð og fékk eins og áður, súpudisk og dálítinn kjötbita. Hún afklæddi sig og fór í rúmið, en hún gerði það vélrænt og af gömlum vana. Daginn eftir fór hún til lögreglustöðvar- innar og bað lögregluna að finna son sinn. Lögreglan vildi ekki gefa neitt ákveðið lof- orð, en tók samt málið að sér. Hún ráfaði um göturnar í þeirri von, að rekast á hann. En henni fannst hún vera ennþá meira emmana en nokkru sinm áður í þessu mikla manrhafi. Þegar hún kom heim í gistibúsið um kvöldið, var henni sagt, að maður nokkur hefði komið og spurt um hana. Kvaðst hann vera með skilaboð frá Páli syni hennar. Hann ætlaði að koma aftur daginn eftir. Hún fékk ákafan hjartslátt og henni kom ekki dúr á auga alla nóttina. Segjum, að það væri nú hann? Já, það gat ómögulega ver- ið neinn annar, enda þótt hún þekkti hann ekki eftir þeim upplýsingum, sem hún fékk varðandi útlit hans. Klukkan níu um morguninn var barið á hurðina hjá henni og hún kallaði: — Kom inn! Hún var tilbúin að þjóta á fætur með útbreiddan faðminn. En það var ókunnur maður, sem kom inn. Hann baðst afsökun- ar á ónæðinu svona snemma morguns. Síð- an skýrði hann frá því, að Páll sonur henn- ar væri skuldugur honum. Það væri að vísu ekki há upphæð, en Páll hefði ekki greitt hana þrátt fyrir gefin loforð. Jenný reyndi að leyna tárunum, sem brutust fram, og þurrkaði þau með fingurgómunum. Maðurinn rétti henni sltjal, sem var við- urkenning frá Páli fyrir skuldinni, sem hljóð- aði upp á níutíu franka. Hann hafði fengið upplýsingar hjá dyraverðinum um komu hennar, og þar sem hann gat ekki haft hend- ur í hári Páls, gerðist hann svo djarfur, að leita til hennar. Hún las upphæðina á skjal* inu og taldi fram peningana. Hún fór ekki út allan daginn. Daginn eftir komu fleiri lánardrottnar- Hún greiddi þeim alla þá peninga, sem hún hafði handbæra, að undanskildum nokkrum frönkum, sem hún hélt eftir handa sjálfn sér. Svo skrifaði hún Rosalie og sagði henm frá högum sínum. Hún eyddi dögunum á gönguferðum a meðan hún beið eftir svari frá þjónustu- stúlku sinni. Hún vissi ekki, hvað hún átti til bragðs að taka, hvernig hún ætti að eyða tímanum, sem virtist aldrei ætla að líða- Hér þekkti hún ekki nokkra sál, sem hún gat rætt við um raunir sínar. Hún þráði að komast heim aftur til litla, afskekkta húss- ins við þjóðveginn. Fyrir nokkrum dögum hafði henni fund' izt lífið þar erfitt og óbærilegt, en nú var allt öðru máli að gegna. Það var eini stað- urinn, sem hún gat hugsað sér að eiga heima á það sem hún átti ólifað. Kvöld eitt var komið bréf frá Rosalie og tvö hundruð frankar. Rosalie skrifaði: — Frú Jenný! KomiS strax heim. Ég sendi y3ur ekki meiri peninga. HvaS Páli viSkemur, þá skal eí sœkja hann, þegar viS jáum upplýsingar um, hvat liann dvelur. Beztu kveSjur frá ySar Rosalie. Það var snjór og kuldi um morguninm þegar Jenný hélt aftur til Batterville. XV. Hún fór ekki lengur út fyrir húsdyr’ hreyfði sig ekki. Á sama tíma á hverjum ein' asta morgni stóð hún fyrir framan glugS' ann og leit til veðurs, því næst gekk húu niður í dagstofu og sat þar fyrir frama11 eldinn. Þar sat hún allan daginn, hreyfingarlaUs og horfði á eldslogana. Hugur hennar var fullur af döprum hugsunum. Það tók að dimma í litlu stofunni, án þess að huU hreyfði sig eða veitti því athygli. Það eina> sem hún gerði, var að bæta brenni á eldinn- Rosalie kom inn með ljós og hrópaði: — Jæja, frú, þér þurfið að hreyfa yður 30

x

Heimilisblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.