Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.03.1957, Blaðsíða 20

Heimilisblaðið - 01.03.1957, Blaðsíða 20
9. En nær drifa óeyrðum áls á svifar grundu, seglin yfir sæjórum seggir rifa mundu. 10. Beittu þá um brimils hvamm brögnum tjáist snjöllum, essum ráar upp og fram í stórsjávar föllum. 11. Fylgdi prúð með hölda hrein . Hræsvelgs knúð af æði jafnan súða álka ein oss um lúðu svæði. 12. Fram með undrum Bylgjan blá blökkum sunda ríður. ölduhundur einn hvar lá akker bundinn viður. 13. Lýsti óraga þegna því á þröstum Lagar slyngum, voðum haga brims um bý og bragna slaga kringum. 14. Huglar víða hringnum á Hlynir skíða tjáðu. Litlu síðar, svo skal tjá, segl upp hýða náðu. 15. Storma gjóður vaxa vann víst af móði stríðum, skellti hróðug hafaldan hryssum flóða tíðum. 16. Undan halda vurðum við voða tjaldi smáum, lengi um kalda laxa mið landið aldrei sáum. 17. Sprungu boðar brjóstum á, búnir voða þjósti, stórir froðu fossar þá féllu af Gnoðar brjósti. 18. Knörnum þokar knár um Unn Kára hroki séður, huldi þoka hnísu brunn háa roki meður. 19. Hlés um bungur Gjálpin grá gaular drunga Ijóðin, brúna þungu ýtum á Ægis sprungu jóðin. 20. Hríðar þráa fylgdi fast funa knái hlýri. Oft í ráar birni brast, boðar rjá við stýri. 21. Hræsvelgs andinn mettur mátt minnstu að vanda eyrði, fyrir Stranda-Hornið hátt hestinn banda keyrði. 22. Reiði ei sparði Ránin gljúp, ranga varðist hestur. ísaf jarðar dreif í djúp drengi harða vestur. 23. Virða tjáða vestur greitt veðrið bráða flytur. Fjall svo náðum nálgast eitt nafn sem þáði ,,Ritur“. 24. Lamin undan löðri þar lá ein sunda Trana; sú á undan vestur var, við svo fundum hana. 25. Akker vundu áls úr jörð örvar lundar tjáðu, á Önundar fjögur fjörð fleyin skunda náðu. 26. Ört nam linna öldu klip, ýtar sinna dáðum. Mörg þar inni útlend skip einnig finna náðum. 27. Mær óseldan mjólkur geim mundi um veldi bera. Óviðfelldin orð hjá þeim all mörg héldum vera. 28. Menn þar hýra mátti sjá og meyjar rýrar valla, þarna týrum það skal tjá þorskinn ,,býra“ kalla. 29. Bróður elda þraut nú þrótt, þjóð óhrelld úr vörum flóðs um veldið austur ótt aftur héldum knörum. 30. Borða á settum birni þar birtings rétt um svæði ei til frétta fleira bar. Fellur þetta kvæði. 64 — HEIMILISBLAÐIÐ

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.