Heimilisblaðið - 01.03.1957, Page 36
Litlu fílsungarnir, Hans og Trína, hafa eignazt hvor
sína blöðruna. „Megum við halda á þeim?“ spyrja
Kalli og Palli. Þeir fá að halda á blöðrunum. En
Kalli og Palli eru ekki eins þungir og þau Hans og
Trína, svo að blöðrurnar svífa með þá upp í loftið.
Aumingja Kalli og Palli! Þeir fara að hágráta og
kalla á hjálp, og til allrar hamingja koma tve'f
smáfuglar og pikka gat á blöðrurnar, svo að
fer úr þeim, og þeir Kalli og Palli svífa aftur niður
á jörðina þar sem Hans og Trína biða þeirra.
Kalli og Palli hafa boðið öllum dýrunum til sín í
hádegisverð. Þeir ætla að gefa þeim buff og lauk
að borða. En þegar þeir eru búnir að taka utan
af nokkrum laukum, renna tárin niður kinnarnar
á þeim, af því að laukurinn fer svo mikið í augun.
„Þið skuluð sækja gíraffann," segir gamla u^9«
„því að hann er svo hálslangur, að hann getui- h
höfuðið langt frá lauknum." Gíraffinn vill SÍarn^g
hjálpa þeim. Hann sezt í skuggann af pálmatre
hamast við að brytja laukinn, en hinir leggja á b°