Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1966, Blaðsíða 5

Heimilisblaðið - 01.05.1966, Blaðsíða 5
Dómur Arabahöfðingjans Eftir JAMES BARTON Þessi stutta frásaga frá eyðimörkinni um Þjófnað og hvernig flett var ofan af hon- um með óvœntum hœtti, bregður upp leift- urmynd af því, hve Arábinn er kænn og bragðvís. Morgun einn lagði ég af stað frá Gazian- tep í Tyrklandi til Bagdad yfir Mesopota- míu-sléttuna ásamt arabiska höfðingjan- um Mahmoud Ibn Moosa og úlfaldalest hans, sem í voru um 90 úlfaldar. Skeggj- aði Arabahöfðinginn reið stórum, hvitum asna, sem hann sýndi mikla nærgætni og virðingu. Þeir tveir voru bókstaflega sam- an dag og nót.t. Mennirnir 19, sem voru í lestinni, voru allir fáfróðir synir eyðimerk- Urinnar. Orð Arabahöfðingjans voru hin einu lög þeirra, og þeir tóku bæði á móti iaunum og refsingum af hendi hans með háleitri ró. Eg hafði meðferðis rúmlega 80 gull-lírur 1 leðurpoka, sem ég geymdi í tjaldi mínu a nóttunni. Á hverjum morgni stakk ég hendinni niður í pokann til þess að full- vissa mig um, að gullpeningarnir væru á Slnum stað. Níunda morguninn varð mér heldur en ekki hverft við, þegar ég upp- götvaði, að pokinn var horfinn. jörðina með hraða, er jókst með fjarlægð- inni í ákveðnu stærðfræðilegu hlutfalli. Hubble ályktaði, að alheimurinn hlyti að vera að þenjast út. Allir hlutar hans fjar- hegðust hver annan í allar áttir. Aðrir sijörnufræðingar staðfestu athuganir hans, °g kenningin um útþenslu alheimsins mark- a®i tímamót í sögu stjörnufræðinnar. Eftir þessa mikilvægu uppgötvun var °ks unnt að svara þverstæðu Olbers. Það HEIMILISBLAÐIÐ Ég leitaði Ibn Moosa strax uppi. „Mah- moud Ibn Moosa,“ tók ég til máls, „ég hef verið gestur þinn í vikutíma og ég get með einlægni vottað þér innilegt þakklæti mitt fyrir höfðinglega gestrisni þína.“ Ibn Moosa lagði höndina á brjóstið, beygði sig djúpt og sagði: „Mesta hamingja Araba er gistivináttan." „Það veit ég, Mahmoud Ibn Moosa,“ hélt ég áfram, „og það veldur mér mikilli hryggð að verða að skýra frá skugga, sem dregið hefur fyrir sól gleði minnar — skugga, sem mér finnst ég tilneyddur sem gestur að skýra boðsherra mínum frá.“ Ég sagði honum frá horfna pokanum. Hann lagði fyrir mig fáeinar spurningar og sat lengi þögull og strauk skegg sitt í sífellu. Loks sagði hann: „Við höldum kyrru fyrir hér í tjaldbúðunum í dag. Það þarf að gera við nokkra af hnökkunum, og tveir eða þrír af ösnunum hafa misst skeif- ur. Þú skalt fá gull þitt aftur fyrir sólset- ur. Inshalláh. Ef Allah vill. Klukkustundu síðar sá ég Arabahöfð- ingjann ganga einan burt frá tjaldbúðun- um. Sólin var komin hátt á loft, áður en hann kom til baka. Hann skipaði svo fyrir, að enginn mætti ónáða hann og lokaði tjalddyrum sínum. Ég fór að verða meir en lítið kvíðafullur út af peningum mín- um. Sá eini, sem gat útvegað mér þá aft- ur, var sofandi! Þrem klukkustundum síð- ar kom hann út og bað um, að miðdegis- verðurinn væri framreiddur. Nú fór tor- tryggni mín jafnvel að ná til Arabahöfð- ingans sjálfs! En þegar máltíðinni var lokið, kom gamli Arabahöfðinginn brunandi út úr tjaldi sínu, virðulegur í fasi, klæddur er dimmt á nóttunni vegna þess, að ál- heimurinn er að þenjast útl Stjarnkerfin fjarlægjast okkur með svo miklum hraða, að Ijósið, sem við tökum á móti frá þeim, dofnar á leiðinni. Það er þetta, sem við eigum að þakka sefandi næturmyrkrið, og það er það, sem bjargar okkur frá að farast í báli glóandi stjörnuljóss. Ef alheimurinn þendist ekki út, væri ekkert líf til á þess- um hnetti. 93 L

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.