Heimilisblaðið


Heimilisblaðið - 01.05.1966, Blaðsíða 39

Heimilisblaðið - 01.05.1966, Blaðsíða 39
r Á meðfylgjandi mynd má sjá brezku hindrunarhlaupakonuna Brendu Meredith á æfingu, en það er faðir hennar sem er að æfa hana. Myndhöggvarinn og málar- inn Tulio í New York hefur gert margar myndir úr blaða- pappír af þekktum mönnum. Hér er hann að ljúka við eina siíka af ítölsku kvikmynda- leikkonunni Sophiu Loren Þarna eru bandarísku leikar- arnir John Wayne, Robert Mit- chum og Carlene Holt að leika í nýrri kvikmynd, sem verið er að taka í Arizona, og heitir „E1 Dorado“. Sænska kvikmyndaleikkonan, Ann Margaret, er mjög eft- irsótt í kvikmyndahlutverk. Hún hefur nú gert 17 samn- inga við kvikmyndafélög í Hollywood. — Á myndinni sést hún með kvikmyndastjóranum George Sidney, en hann stjórn- aði upptöku á síðustu mynd- inni sem hún lék í, „The Swinger". Litli hnokkinn kom að skjald- bökunni, þar sem hún var að sóla sig á ströndinni við St. Pétursborg á Florida í Banda- ríkjunum. Skjaldbakan var strax tekin og látin í sædýra- safnið á Florida. Myndhöggvarinn Habbah i Bagdad hefur æft sig í að búa til ýmsar fígúrur úr hnífapör- um á meðan hún hefur beðið eftir matnum. hEIMILISBLAÐIÐ 127

x

Heimilisblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilisblaðið
https://timarit.is/publication/431

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.